Fréttir

Aðalfundur Kappadeildar 2010

Aðalfundur Kappadeildar var haldinn 20. maí í sumarbústað Önnu Kristínar Sigurðardóttur á Mýrunum. Tólf Kappakonur áttu heimangengt þennan dag, fjölmenntu í bíla og brunuðu burt úr bænum um fjögur leytið.  Anna Kristín var þá þegar komin í sumarbústaðinn og beið okkar með mat og drykk.  Eftir aðalfundinn fórum við í gönguferð um svæðið undir leiðsögn Önnu Kristínar. 
Lesa meira

Pistill frá formanninum

Innilegar þakkir fyrir áhugaverðan og spes fund í gærkveldi (11. febrúar). Kærar þakkir fyrir að hafa þessa fallegu umgjörð um hann Erla (Guðjóns) og þínar fínu móttökur. Það er gaman að kynnast nánar og mikill auður og viska sem býr innra með þessum fallega hópi Ég vil þakka öllum þeim sem voru með innlegg á fundinum í gær, þ.e. þeim Önnu Sigríði, Önnu Kristínu, Erlu Gunnarsdóttur og Valgerði. Mér fannst þau afar fjölbreytt, einlæg og áhugavekjandi. Reyndar hvert með sínu sérstæða sniði. Þetta er svo sannarlega eitthvað sem er geymt en ekki gleymt.
Lesa meira

Fundur á nýju ári

Fyrsti fundur ársins 2010 verður haldinn í Öldutúnsskóla í Hafnarfirði 11. febrúar kl. 20:00
Lesa meira

Annar fundur vetrarins 20. október

Annar fundur vetrarins verður haldinn 20. október í Setbergsskóla í Hafnarfirði. Fundur hefst kl. 20:00. Dagskrá hefur verið send út til félagskvenna
Lesa meira

Fyrsti fundur vetrarins

Fysti fundur Kappadeildar verður haldinn 28. september kl. 20:00 í húsnæði landsskrifstofu Rauða kross Íslands að Efstaleiti 9. Dagskrá hefur verið send til félagskvenna.
Lesa meira

Skýrsla stjórnar, flutt á aðalfundi 2009

Kappadeildin okkar er 10. deildin sem stofnuð var innan samtakanna, en við erum við 27 konur í þessari deild. Við höfum haldið sex fundi á árinu og einn þeirra var með Alfadeildinni. Fyrsti fundurinn okkar var í Árbæjarsafni og tók Guðný Gerður Gunnarsdóttir forstöðukona safnsins og Kappasystir okkar á móti okkur. Það var afar ánægjulegt að heimsækja safnið, skoða leikfangasýningu og teiga ilminn frá liðnum tímum, því við þurfum svo sannarlega á minningunum að halda til þess að þekkja uppruna okkar sem vegvísi inn í framtíðina.
Lesa meira

Síðasti fundur vetrarins

Síðasti fundur vetrarins var haldinn þann 7. maí.  Farin var menningarferð í miðbæ Reykjavíkur, skoðuð sýning Hörpu Árnadóttur í Hallgrímskirkju, rölt um Skólavörðustíginn og borðað saman á veitingastaðnum Kryddlegin hjörtu.  Þrátt fyrir brunakulda var okkur öllum hlýtt um hjartarætur þegar við kvöddumst og hlökkum allar til að hittast aftur í haust.
Lesa meira