Heiðdís Norðfjörð
Heiðdís Norðfjörð fæddist 21.
desember 1940 á Akureyri. Hún tók próf frá húsmæðraskólanum á
Laugalandi 1959 og útskrifaður sem sjúkraliði 1975. Heiðdís hefur
starfað sem forstöðukona við hjúkrun á dvalarheimili fyrir aldraða,
læknafulltrúi við embætti héraðslæknis Norðurlands eystra,
læknaritari við Heilsugæslustöðina á Akureyri, meðhjálpari við
Akureyrarkirkju og dagskrárgerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu.
Heiðdís hefur lesið sögur og ævintýri inn á fjölmargar snældur og
samið lög við eigin texta og annarra, sem flutt hafa verið á
hljómplötum og snældum og birt í blöðum og bókum. Má þar nefna lög
hennar við ljóð Kristjáns frá Djúpalæk í barnabók hans, Sögunni af
Pínu Pílu, auk laga og texta í barnasögunni Dolla dropa eftir Jónu
Axfjörð. Heiðdís hefur einnig samið fjölmörg ljóð. Þau hafa m.a.
birst í bókinni "Skáldatal íslenskra barna- og unglingabókahöfunda",
svo og í blaði Félags íslenskra læknaritara „Læknaritarinn" .
Hún er gift Gunnari Jóhannssyni bifvélameistara og eiga þau þrjá
uppkomna syni.
Bækur:
- Ævintýri frá annarri stjörnu,
útg. Prentverk Odds Björnssonar, Akureyri 1977
- Bjössi og hvolpurinn hans,
útg. Bókaútgáfan Skjaldborg, Akureyri 1981
- Ævintýrin okkar, útg.
Bókaútgáfan Skjaldborg, Akureyri 1983 –
- Góður, betri, bestur, útg.
Bókaútgáfan Skjaldborg, Akureyri 1988
- Stríðnisstelpa, útg.
Bókaútgáfan Skjaldborg, Reykjavík 1992.
- Lítill Heimur / Hljóðbók /
Viðurkenning í samkeppni um létt lesefni fyrir börn
Námsgagnastofnunin í Reykjavík,
árið 1984
Frumsamin ævintýri á snældum:
- Ævintýri frá annarri stjörnu, / frumsamin lög / Textar eftir Úlf
Ragnarsson.
- Strákurinn sem vildi eignast tunglið,
- Vorið í garðinum
- Áramótaálfar
- Strákurinn með pottlokið ofl
Að auki hefur Heiðdís Norðfjörð lesið fyrir börn fjölmörg ævintýri
og sögur.
Heimildir: Elísabet Þórðardóttir, Guðríður Gísladóttir og Ingibjörg
Sæmundsdóttir. 1992. Skáldatal : íslenskir barna- og
unglingabókahöfundar. Lindin, Reykjavík. Heiðdís Norðfjörð. 2007, 22. maí. Vefslóð:
http://www.rjoma.is/heiddis/
|