Aðalfundur 2026 og inntaka nýs félaga

Pernilla formaður og Vilborg Ása stjórnarkona taka Guðrúnu Birgisdóttur inn í Iota-deild
Pernilla formaður og Vilborg Ása stjórnarkona taka Guðrúnu Birgisdóttur inn í Iota-deild

Þann 21. apríl sl. var aðalfundur IOTA-deildar haldinn í Víkingaskálanum á Þingeyri þar sem við fræddumst um starfsemina þar og tókum inn eina nýja konu. Á meðfylgjandi myndum má sjá þegar Pernilla formaður og Vilborg Ása stjórnarkona tóku Guðrúnu Birgisdóttur inn í IOTA-deild.

Einnig fóru fram stjórnarskipti þar sem fráfarandi formaður og stjórn létu af störfum en ný stjórn var kjörin:

Guðrún Birgisdóttir formaður,
Pernilla Rein,
Iwona Maria Samson,
Jónína Hrönn Símonardóttir,
Sigrún Pálmadóttir.