Frábær fundur í Súðavík

Febrúarfundur okkar í IOTA deild var haldinn í Súðavík 28. febrúar. Það var yndislegt að fá að heimsækja Súðavíkurskóla þar sem Anna Lind og Jóna Ben, okkar góðu DKG félagskonur tóku á móti okkur. Þær kynntu okkur skólastarfið og gestur fundarins var Rúna Esradóttir tónlistarkennari skólans sem sagði okkur frá tónlistarævintýrinu sem á sér stað í skólanum þeirra og gladdi okkur með því að láta okkur syngja, - eins og við gerum nú reyndar á hverjum fundi.

Síðan gæddum við okkur á dýrindis salötum sem Anna Lind og Martha Lilja bjuggu til.

Þetta var yndislegt kvöld. Allar fórum við vel nærðar heim, - bæði á sál og líkama.