Vetrarstarfið hafið

Vetrarstarf IOTA deildar hófst með heimsókn í Blábankann á Þingeyri þann 2.október sl. 

Framundan er fjölbreytt vetrarstarf og munum við heimsækja nýjan Lýðháskóla á Flateyri í nóvember og halda jólafundinn á Hótel Ísafirði í byrjun desember.

Konur munu vera með orð til umhugsunar eins og áður.

Í stjórn eru Steinunn Guðmundsdóttir formaður, Barbara Gunnlaugsson varaformaður, Bjarney Ingibjörg Gunnlaugsdóttir ritaris og Helga Björk Jóhannsdóttir meðstjórnandi. Gjaldkeri er Dagný Sveinbjörnsdóttir.