Eta-systur í heimsókn á Selfossi 17. mars

Margrét og Nanna töluðu um líðan barna.
Margrét og Nanna töluðu um líðan barna.

Fundurinn settur og fréttir úr starfi landsambandsins

Fundurinn hófst á því að Margrét, formaður, kveikti á kertum vináttu, trúmennsku og hjálpsemi. Eftir nafnakall hjá báðum deildum fór Margrét yfir fréttir úr starfi Landsambands DKG.

Hún minntist fyrst á útgáfuhófið sem haldið var 16. janúar í Veröld – húsi Vigdísar – í tilefni útkomu afmælisrits DKG.

Landsambandsstjórn og menntamálanefnd stóðu fyrir vinnustofu með Louise Evans 13. mars. Margrét sótti vinnustofuna ásamt annarri Epsilon-systur og sagði hana bæði skemmtilega og fræðandi. Louise Evans vinnur með aðferðina The 5 Chairs  – atferlisramma sem eflir samskipti, félags- og tilfinningafærni og sjálfstraust bæði í starfi og einkalífi. Hægt er að horfa á fyrirlestur Evans á TED.

Að lokum minnti Margrét á boð frá Finnlandsdeild DKG um þátttöku á ársfund 11. apríl í Tempere.

Umfjöllun um málþingið „Lykill að líðan barna og unglinga“

Aðalefni fundarins var svo málþingið okkar, „Lykill að líðan barna og unglinga“, sem haldið var 30. október í FSu. Margrét fór ítarlega yfir alla fyrirlestra og meðal fyrirlesara var forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir.

Eta- systur lýstu mikilli ánægju með framtak Epsilon-systra og Margrét sagði að systur væru afar stoltar af þessu málþingi – rétt eins og því sem haldið var fyrir tveimur árum „Lykill að læsi“.

Orð til umhugsunar um líðan og námsárangur

Nanna K. Christinsen flutti „Orð til umhugsunar.“ Hún þakkaði fyrir yndislegar móttökur og óskaði Epsilon-systrum til hamingju með glæsilegt málþing. Hún talaði um sama efni og Margrét - um líðan nemenda og námsárangur, málaflokk sem hún hefur alltaf haft áhuga á og unnið með sem kennari og í öðrum fræðslustörfum.

Nanna sagði frá skólaheimsókn til Englands þar sem hún kynntist leiðsagnarnámi – kennsluaðferð sem leggur áherslu á mikilvægi þess að gera væntingar til nemenda, sýna þeim traust og skapa aðstæður þar sem innri áhugahvöt eflist. Nemendur þurfi að trúa á eigin getu, sjá tilgang í náminu og upplifa það sem skemmtilegt og þýðingarmikið.

Hún fjallaði einnig um seiglu nemenda og nauðsyn þess að þeir óttist ekki mistök heldur læri af þeim. Máli sínu til stuðning sagði hún dæmisögur sem endurspegluðu áskoranir og tækifæri í skólastarfi og undirstrikuðu mikilvægi þess að hlúa að líðan nemenda samhliða fræðslu.

Happdrætti og fundarlok

Happdrættið var á sínum stað og Ólöf Helga, formaður Eta‑deildar, dró út þrjá vinninga.

Að loknum dagskrárliðum var fundi slitið og slökkt á kertum vináttu, trúmennsku og hjálpsemi.

Systur snæddu síðan saman kvöldverð í Tryggvaskála. Það má með sanni segja að um skemmtilegan og notalegan fund hafi verið að ræða í góðum félagsskap Eta‑systra.

Epsilon‑deildin þakkar Eta-systrum kærlega fyrir komuna og ánægjulega samveru.

Eta-systur í heimsókn hjá Epsilon-systrum 17.3.2026