Leiðarstjarnan

  Á fundinum í Vatnsholti í Flóa laugardaginn 16. nóvember 2013 kom Sigrún Jóhannesdóttir úr Deltadeild á fundinn og kynnti fyrir okkur námskeið um markmið og leiðir til að efla innra starf deilda sem hún hefur þróað og nefnir Delta Kappa Gamma stjarnan eða „Leiðarstjarnan“. Við byrjuðum á að ræða saman í litlum hópum hvernig við vildum hafa fundina ef við breyttum einhverju en vorum sammála um að við værum frekar ánægðar með okkar starf.

Sigrún dreifði möppu með gögnum sem voru kynning á Leiðarstjörnunni. Hún felur í sér 5 mismunandi þætti eða stjörnusvið, sem eru sjálfsefling, næmi, framsýni, veruleiki og hugrekki. Sumir þessara þátta eru byggðir á leiðtogamódeli sem nefnist The Leadership Diamond og má finna upplýsingar um áwww.pib.net. Við fengum kynningu á öllum þáttum stjörnunnar en einbeittum okkur síðan að fyrsta þættinum sem er við sjálfar! Hún benti okkur á að það væri spenna milli allra þátta módelsins og það væri stöðug vinna hjá okkur alla ævi að fást við þá spennu í einkalífi, starfi og félagslífi og halda stjörnuhlutföllunum réttum.


Sigrún fór yfir ýmis tæki sem nota má í við að sjálfseflingu og virkja betur skapandi hugsun. Huglásar hindra okkur og allir lyklar til að opna þá lása væru tvívirkir – þeir bæði lokuðu og opnuðu!


Leiðarstjarnan byggir einnig á því að allar heilbrigðar manneskjur hafi frjálsan vilja og Sigrún kynnti línuna sem tæki til að virkja hann. Hún talaði um skapandi forystu og benti á gögn í möppunni um 15 atriði sem árangursríkir leiðtogar notuðu dag hvern til að læra af. Sigrún hvatti okkur til að stíga út fyrir þægindaramman og nýta þessa aðferðir til að efla okkur sjálfar, stjórnina og deildina hjá okkur. Að lokum lét hún okkur leysa ýmsar þrautir til að efla okkur.


Félagskonur voru mjög ánægðar með fræðsluna og sammála því sem ein sagði: „Þetta var frábær fundur, gagnlegur og skemmtilegur!“