Inntökufundur við ósa Ölfusár.

Kristjana Pálsdóttir nýkomin inn í Epsilondeildina.
Kristjana Pálsdóttir nýkomin inn í Epsilondeildina.

Að venju hófst fundurinn með því að kveikt var á kertum og fundargerðir lesnar.

Orð til umhugsunar var í höndum Ingibjargar Þorgerðar. Hún minntist Steins, frænda síns og fóstra, sem hún fylgdi til grafar daginn áður. Hann lifði fallegu lífi þrátt fyrir fjölmörg áföll. Steinn hætti til sjós á miðjum aldri, lét draum sinn rætast og fór að læra söng. Hann söng iðulega einsöng með kórunum sínum á Suðurnesjum.

Kristjana Pálsdóttir var tekin inn í Epsilondeildina við hátíðlega athöfn þar sem farið var yfir gildi samtakanna og tákn þeirra. Að inntöku Kristjönu lokinni sungu systur Vorvindar glaðir.

Dregnir voru út tveir vinningar í hinu vinsæla happdrætti deildarinnar og Elinborg og Maddý duttu í lukkupottinn að þessu sinni.

Áður en fundi var slitið bað Hrund um orðið. Hún þakkaði fyrir fundinn og minntist á nýútkomið rit félagsins og hvatti sérstaklega til lesturs á kaflanum um tilurð samtakanna, sem er afar áhugaverð lesning. Einnig minnti hún á 100 ára afmæli Delta Kappa Gamma sem verður eftir tvö ár og mikilvægi þess að stuðla að fjölgun félagskvenna af því tilefni. Flestar deildir eru á Íslandi og fjöldi félagskvenna hvergi meiri.

Hróðugar yfir þeirri staðreynd færðum við okkur inn á veitingastaðinn Óm og snæddum saman.

Inntökufundur við ósa Ölfusár 15. apríl 2026