Vor- og aðalfundur Epsilondeildar haldinn í Skálholti 2026

Margrét Guðmundsdóttir, formaður, sagði frá nýútkomnu Vorfréttablaði samtakanna og hvatti systur til að kynna sér það á heimasíðu DKG. Þar er meðal annars að finna pistil um starf Epsilondeildar. Hún minnti jafnframt á að næsta Evrópuþing DKG fari fram í Kristiansand í Noregi dagana 11.–13. júní 2027. Margrét greindi einnig frá því að hún hefði nokkur afmælisrit til sölu sem áhugasamar systur gætu nálgast hjá henni. Systur voru sammála um að ritið væri fallegt, fróðlegt og eigulegt.

Eydís Katla flutti „Orð til umhugsunar“. Hún hóf erindi sitt á því að bjóða okkur með sér út í náttúruna og leiddi okkur í huganum um stað þar sem finna mátti fjall, læk og steina. Frá því hún var lítil hnáta hefur hún sótt í steina, vötn, læki og fossa. Til eru margvíslegar tegundir steina og einn þeirra, hinn svokallaði lausnarsteinn, á samkvæmt hefð að styðja konur í fæðingu. Hún fékk slíkan stein frá tengdamóður sinni þegar hún ól frumburð sinn, en hann reyndist ekki gagnast eins og vonast  var eftir. Fæðingin endaði með keisaraskurði og hún fékk gullfallegan dreng í fangið.

Eydís benti jafnframt á að á vefnum væri að finna fjölbreytt steinaverkefni sem henta vel til samveru með barnabörnum. Að lokum hvatti hún okkur til að fara út í náttúruna, handfjatla steina og njóta augnabliksins. Hún lauk erindi sínu með upplestri á ljóðinu „Óskarsteinar“.

Aðalfundarhluti hófst að loknu erindi. Fundarstjóri var Ásborg Arnþórsdóttir. Margrét Guðmundsdóttir, formaður, flutti skýrslu stjórnar fyrir tímabilið 2024–2026 og Harpa Björnsdóttir, gjaldkeri, fór yfir rekstraryfirlit. Báðar skýrslur voru samþykktar.

Fram fór kosning formanns. Uppstillinganefnd lagði til að Bolette Höeg Koch yrði formaður, sem var samþykkt með lófataki og húrrahrópum. Þetta er í þriðja sinn sem hún gegnir formennsku í Epsilondeild. Bolette þakkaði traustið í stuttu ávarpi. Aðrar í stjórn eru Guðlaug Jónsdóttir, Harpa Björnsdóttir, Vera Valgarðsdóttir og Margrét Steinunn Guðjónsdóttir. Í uppstillinganefnd sátu Elinborg Sigurðardóttir, Ester Hjartardóttir og Guðlaug Jónsdóttir. Margrét Guðmundsdóttir og Eydís Katla gengu úr stjórn og var þeim þakkað fyrir vel unnin störf. Margrét hefur gegnt formennsku síðustu tvö ár og staðið sig afar vel að mati systra.

Samþykkt var að árgjaldið haldist óbreytt, 1.200 krónur. Happdrættismiði kostar nú 600 krónur, en tveir miðar 1.000 krónur.

Aðalfundi slitið

Undir liðnum „Önnur mál“ var spurt hvort deildin ætti að eignast eitt eintak af afmælisritinu, en það var talið óþarft þar sem flestar konur hafa þegar keypt ritið. Happdrætti fór fram á hefðbundinn hátt og hlaut Kristjana Pálsdóttir vinninginn. Að loknum formlegum störfum var fundi slitið og slökkt á kertum.

Rúsínan í pylsuendanum var tónlistarflutningur mæðgnanna Magneu Gunnarsdóttur og Eyrúnar Ingvarsdóttur. Eyrún, sem nýlokið hefur námi í framhaldsskóla og hyggur á framhaldsnám í fiðluleik við Konunglegu Akademíuna í Kaupmannahöfn í haust, lék fjögur lög á fiðlu við píanóundirleik móður sinnar.

Að lokum héldu systur á veitingastaðinn Hvönn, nutu góðs málsverðar og samvista, og gengu glaðar út í vornóttina sem var bæði fögur og dulúðleg í sveitinni fögru.