Fyrsti fundur nýs starfsárs

Við munum fá kynningu á starfsemi Grósku hugmyndahúss sem er suðupottur nýsköpunar á Íslandi. Í Grósku býr öflugt samfélag þar sem höfuðáhersla er á aðstæður til samskipta og tengsla, hvort sem er innan hússins eða við fræðasamfélag háskólasvæðisins. Jafnframt mun fulltrúi einhvers fyrirtækis í húsinu segja stuttlega frá sögu fyrirtækis síns.