Stefna og markmið Alfadeildar

Markmið, stefna og sýn Alfadeildar er í samræmi við markmið, stefnu og sýn alþjóðasamtaka Delta Kappa Gamma.

Stefna  samtakanna:
"Alþjóðasamtökin Delta Kappa Gamma stuðla að auknum fræðilegum og persónulegum þroska kvenna í fræðslustörfum og gæðum í menntun og uppeldisstörfum."

Markmið samtakanna:

  • að stuðla að alþjóðasamstarfi kvenna í fræðslustörfum
  • að heiðra konur sem standa eða hafa staðið framarlega á sviði menntamála/fræðslumála eða eru að vinna markverð störf í þágu þeirra
  • að efla starfsáhuga og stöðu kvenna í fræðslustörfum
  • að stuðla að æskilegri lagasetningu og styðja framgang hvers konar viðleitni til hagsbóta fyrir menntamál/fræðslumál almennt og fyrir konur í fræðslustörfum
  • að veita konum, sem skara fram úr í menntamálum, styrki til framhaldsnáms í háskóla og styrkja konur í fræðslustörfum utan samtakanna
  • að efla persónulegan og faglegan þroska félagskvenna og hvetja þær til virkni
  • að fræða félaga um það sem efst er á baugi í efnahagsmálum, félagsmálum, stjórnmálum og menntamálum og stuðla með því að vaxandi skilningi og virkri þátttöku þeirra í samfélagi þjóðanna.

Sýn Delta Kappa Gamma kvenna er að vera:
Forystukonur í fræðslustörfum til áhrifa á menntun um allan heim.


Síðast uppfært 10. maí 2021