Stefna-markmið-sýn

Stefna og markmið Deltadeildar

Markmið, stefna og sýn Deltadeildar er í samræmi við markmið, stefnu og sýn alþjóðasamtaka Delta Kappa Gamma sem eru eftirfarandi:

Stefna samtakanna:

„Alþjóðasamtökin Delta Kappa Gamma stuðla að auknum fræðilegum og persónulegum þroska kvenna í fræðslustörfum og gæðum í menntun og uppeldisstörfum“.

Markmið samtakanna eru:
  • Að efla tengsl kvenna sem vinna að menntamálum/fræðslustörfum víðsvegar í heiminum.
  • Að heiðra konur sem standa eða hafa staðið framarlega á einhverju sviði menntamála/fræðslumála eða eru að vinna markverð störf í þágu þeirra.
  • Að efla starfsáhuga og stöðu kvenna í fræðslustörfum.
  • Að stuðla að æskilegri lagasetningu og styðja hvers konar viðleitni til umbóta í menntamálum almennt og fyrir konur í fræðslustörfum.
  • Að veita konum, sem skara fram úr í menntamálum, styrki til framhaldsnáms í háskóla og styrkja konur í fræðslustörfum utan samtakanna.
  • Að efla persónulegan og faglegan þroska félagskvenna og hvetja þær til virkni.
  • Að fræða félagskonur um það sem efst er á baugi í efnahagsmálum, félagsmálum, stjórnmálum og menntamálum og stuðla með því að vaxandi skilningi og virkri þátttöku þeirra í samfélagi þjóðanna.

Sýn Delta Kappa Gamma kvenna er að vera:

Forystukonur í fræðslustörfum til áhrifa á menntun um allan heim.


Síðast uppfært 10. maí 2021