Fundur í Deltadeild haldinn á Akranesi

Fundað verður þriðjudaginn 9. apríl, kl. 17.00 í bæjarþingsal Akraneskaupstaðar að Dalbraut 4, Akranesi. Erindi flytur Sólveig Sigurðardóttir, deildarstjóri farsældarþjónustu barna. Ruth Jörgensdóttir Rauterberg flytur Orð til umhugsunar. Borðað verður í Golfskálanum á veitingastaðnum Nítjándu. Orð til umhugsunar verður á sínum stað ásamt happdrættinu okkar góða.