Aðalfundur Deltadeildar 2026

Aðalfundur Deltadeildar var haldinn á heimili Theodóru formanns, Kveldúlfsgötu 23 í Borgarnesi þann 20.apríl 2026. kl.17:30
Hrund Logadóttir forseti DKG var gestur fundarins. 

Inga Dóra HalldórsdóttirTheodóra setti fundinn og nýr formaður deildarinnar Inga Dóra Halldórsdóttir kveikti á kertunum.

Að loknum hefðbundnum upphafsatriðum hvers fundar flutti Jónína Erna Orð til umhugsunar. Henni fannst til umhugsunar hvernig orðræða og málflutningur Bandaríkjaforseta virðist hafa fært mörk, líka í orðræðunni hér á Íslandi. Það valdi áhyggjum hversu gildi hafa breyst og það megi óttast að pólitíkin verði aldrei söm. Jónína nefndi sem dæmi orð ráðherra á kennaraþingi. Þetta valdi áhyggjum um framtíð lýðræðis. Virðingu skorti en Jónína sagðist þó hafa séð jákvæða umræðu nú í aðdraganda sveitastjórnarkosninga. En hver og ein þurfi að horfa í eigin barm og hugleiða hvar hægt sé að gera betur.

Því næst voru veitingar bornar fram í boði deildarinnar.

Næst á dagskrá var aðalfundur með sína hefðbundnu aðalfundardagskrá þar sem Jónína Erna stýrði fundi og Sigurveig ritaði fundargerð. Skýrsla stjórnar og gjaldkera ásamt ársreikningum hlutu einróma samþykki fundarkvenna, ákveðið var að hafa árgjald óbreytt kr. 13.000.- og skoðunarmenn ársreikninga verða áfram þær Brynja Helgadóttir og Guðlaug Sverrisdóttir .
Uppstillinganefnd lagði fram tillögu að nýrri stjórn og hún var samþykkt einróma með lófataki. Nýja stjórn skipa:

Inga Dóra Halldórsdóttir formaður

Ingibjörg A. Konráðsdóttir

Jensína Valdimarsdóttir

Theodóra Þorsteinsdóttir 

Sóley Sigurþórsdóttir gjaldkeri

Ásta Egilsdóttir vefstjóri

Undir liðnum önnur mál færði Theodóra rós þeim sem mætt höfðu á alla fundi vetrarins. Þær voru: Ásta, Elsa, Gulla, Kristín Gísla, Jónína Erna og Jónína Eiríks.

Jónína Eiríksdóttir hélt stutta tölu um mikilvægi prentaðs máls og skoraði á félagskonur að kaupa 50 ára afmælisrit DKG. Var áskoruninni vel tekið. Ásta sagði einnig frá tilurð ritsins. 

Þá tók Hrund forseti landssambandsins til máls. Hún nefndi einnig afmælisritið og þá miklu vinnu sem lögð hafði verið í það. Þar væri líka m.a. sögð áhugaverð saga félagsins. Hrund minnnti á að mikið efni er á heimasíðu sambandsins s.s. langtímaáætlun og upplýsingar um nýtt framkvæmdaráð sem tekur til starfa í haust og framkvæmdaáætlun. Á heimsvísu eru félagssvæði DKG fimm og Ísland tilheyrir Evrópuhluta samtakanna með 13 deildir. Evrópudeildirnar halda tengslum með Zoom fundum. Hrund hvatti til þátttöku í nefndum, það væri bæði áhugavert og lærdómsríkt. Áhugi er á að stofna deildir í fleiri Evrópulöndum. Efla þarf tengsl kvenna og sífellt fleiri starfstéttir auk kennara eru nú í DKG. Hrund varpaði fram spurningunni hvort DKG eigi erindi í dag. Hún sagði að félagið styðji, styrki og efli samvinnu, umbætur og fræðslu víðsvegar í heiminum. Hún sagði engan vafa leika á erindi DKG Í dag. Árangur í jafnréttismálum er viðkvæmur og bakslag hefur orðið og grafið er markvisst undan ákveðunum hópum þar með talið konum. Hún minnti á að á stofntíma þurfti að hvíla leynd yfir samtökum kvenna. Ekki megi gleyma að aukin menntun kvenna er friðarvinna í heiminum.

Þá fór fram inntaka nýja félaga. Kristín Gísladóttir og Signý Óskarsdóttir voru teknar inn í deildina. Athöfnin fór fram með hefðbundnum hætti undir leiðsögn Theodóru, Ingu Dóru, Sóleyjar og Hrundar. Þess má geta að Signý átt afmæli þennan dag og fékk því afmælissönginn í upphafi fundar.

Sungin voru nokkur lög og síðan var ný stjórn boðin velkomin og þeim færðar rósir og fráfarandi stjórn kvödd með rósum. Theodóra hélt stutta tölu og þakkaði fyrir traust og gott samstarf þessi tvö ár.

Happdrættið var á sínum stað og Sívý fékk vinninginn. Theodóra sleit síðan fundi og félagskonur gengu út í sólina til myndatöku.

Fréttin byggir á fundargerð fundarins. Myndir frá fundinum eru í fundargerðinni.
ÁE