Fundur í Deltadeild

Jólafundurinn okkar verður haldinn miðvikudaginn 25 nóvember kl. 17:30 í húsnæði grunn- og leikskólans á Kleppjárnsreykjum. Sjöfn Vilhjálmsdóttir leikskólastjóri ætlar að sýna okkur nýju húsakynni skólans og segja frá starfseminni, en skólinn á 40 ára afmæli í ár. Kristín Gísladóttir verður með orð til umhugsunar og happadrættið verður á sínum stað.

Við fáum veitingar, með jólalegu ívafi, til okkar á staðinn, þannig að við eigum notalega samverustund í fallegu húsnæði og umhverfi.

Vinsamlegast staðfestið þátttöku í síðasta lagi miðvikudaginn 18. nóvember.