Deildarfundur í Deltadeild

 Fjórði fundur Deltadeildar var haldinn í leikskólanum Garðaseli á Akranesi 3. mars 2026

Theodóra setti fund og Sigurveig kveikti á kertum. Guðlaug Sverrisdóttir flutti orð til umhugsunar í formi uppistands um starf kennara í grunnskóla. Þar var fjallað skemmtilega um börn og sýn þeirra á raunveruleikann, einlægni þeirra, valkvæða hreyfingu, orkustig frá lægsta til hæsta og hvernig kennari þarf að bregðast við þessu af fagmennsku þó oft reyni mikið á.

Sigurveig Sigurðardóttir Guðlaug Sverrisdóttir Ingunn Sveinsdóttir

Næst á dagskrá var kynning Ingunnar Sveinsdóttur leikskólastjóra á  Garðaseli en Garðasel er heilsuleikskóli sem flutti í nýtt húsnæði 2022 og var komið í fulla nýtingu 2023. Starfsmenn tóku þátt í hönnun leikskólans og voru með í að velja búnað. Leikskólinn var hannaður með það fyrir augum að húsnæðið stýri ekki starfseminni og að leikskólastarfið geti þróast á fjölbreyttan hátt. 

Í starfinu sem heilsuleikskóli eru helstu áherslur: Hreyfing, Næring, Listsköpun, Heilsubók barnsins og Útinám. Til að auka gæði í samskiptum má nefna að unnið hefur verið með Vináttuverkefni Barnaheilla – Blær og Uppeldi til ábyrgðar.

Í skólanum er unnið eftir læsisstefnu Akraness þar sem rauði þráðurinn er öflug málörvun. Áhersla er á lestur og gæða lestrastundir fyrir alla. Unnið er með Tákn með tali og Lubba og málbeinin. Orðaskil, TRAS og Hljóm-2 eru notuð til að finna þau börn sem þurfa aukalega örvun.

Ingunn sagði einnig frá velsóttum, gjaldfrjálsum foreldranámskeiðum sem starfsfólk leikskólans heldur. Námskeiðið heitir Tengjumst í leik-föruneyti barna en áhersla námskeiðsins er á leikinn og að tengjast börnunum og kenna í gegnum leik.

Nánar má fræðast um starfsemi Garðasels á vef skólans https://www.gardasel.is/ 

Undir liðnum Önnur mál var Halldóru afhent rós í tilefni sjötugsafmælis hennar og Guðlaug fékk rós fyrir undirbúning fundarins.Theodóra minnti á boð til DKG í Finnlandi sem sent var í tölvupósti og Ásta minnti á námskeið sem DKG á Íslandi stendur fyrir: THE 5 CHAIRS. A Revolutionary Framework for Behavioural Transformation. 

Næsti fundur 20. apríl er aðalfundur með kosningu nýrrar stjórnar og verður hann haldinn í Borgarnesi.

Áður en við kvöddum gekk Ingunn um með okkur skólann og sýndi okkur húsnæðið. Síðan var borðað á veitingahúsinu Galito og þar dregið í happdrættinu og hlaut Elsa vinninginn að þessu sinni.

Theodóra Þorsteinsdóttir og Ingunn Sveinsdóttir Elísabet Jóhannesdóttir Kvöldverður á Galito

 Fréttin er byggð á fundargerð fundarins - ÁE