Attentus, fyrirtæki Árnýjar hlýtur hvatningarviðurkenningu

Við óskum Árnýju Elíasdóttur innilega til hamingju með hvatningarviðurkenningu fyrir árið 2012 sem FKA (Félag kvenna í atvinnurekstri) veitti henni ásamt samstarfskonum sínum Ingu B. Hjaltadóttur og Ingunni Björk Vilhjálmsdóttur en þær eru stofnendur og eigendur Attentus ehf. Attentus veitir fyrirtækjum alhliða ráðgjöf í mannauðs- og fræðslumálum. Það býður upp á  aðstoð við stefnumótun, þjálfun nýliða, stjórnendaráðgjöf, mat og þjálfun, vinnustaðagreiningu og áreiðanleikakannanir á sviði mannauðsmála. Auk þess er hægt að leigja hjá Attentus bæði fræðslu- og mannauðsstjóra og er mikil eftirspurn eftir slíkri þjónustu. Attentus hefur nýlega skrifað undir árssamning við fyrirtæki á borð við Ísfélagið í Vestmannaeyjum, Öryggismiðstöðina, Tal, Kex hostel og Nordic Visitor. Okkar kona hefur því í nógu að snúast á næstunni og óskum við henni velfarnaðar á þessari spennandi vegferð sem hún er á.