Stefna og markmið Gammadeildar

Stefna, markmið og sýn Gammadeildar er í samræmi við markmið, stefnu og sýn alþjóðasamtaka Delta Kappa Gamma.

Stefna  samtakanna:
„Alþjóðasamtökin Delta Kappa Gamma stuðla að auknum fræðilegum og persónulegum þroska kvenna í fræðslustörfum og gæðum í menntun og uppeldisstörfum“.

Markmið samtakanna er að:

  1. stuðla að alþjóðasamstarfi kvenna í fræðslustörfum
  2. heiðra konur sem standa eða hafa staðið framarlega á sviði menntamála/fræðslumála eða eru að vinna markverð störf í þágu þeirra
  3. efla starfsáhuga og stöðu kvenna í fræðslustörfum
  4. stuðla að æskilegri lagasetningu og styðja framgang hvers konar viðleitni til hagsbóta fyrir menntamál/fræðslumál almennt og fyrir konur í fræðslustörfum
  5. veita konum, sem skara fram úr í menntamálum, styrki til framhaldsnáms í háskóla og styrkja konur í fræðslustörfum utan samtakanna
  6. efla persónulegan og faglegan þroska félagskvenna og hvetja þær til virkni
  7. fræða félaga um það sem efst er á baugi í efnahagsmálum, félagsmálum, stjórnmálum og menntamálum og stuðla með því að vaxandi skilningi og virkri þátttöku þeirra í samfélagi þjóðanna.
  8. Sýn samtakanna:
  9. Forystukonur í fræðslustörfum sem geta haft áhrif á menntun um víða veröld

Sýn Delta Kappa Gamma kvenna er að vera:

Forystukonur í fræðslustörfum til áhrifa á menntun um allan heim.


Síðast uppfært 10. maí 2021