Gammadeild styrkir gott málefni.

Í tilefni af 40 ára afmæli Gammadeildar var ákveðið að veita félaginu Móðurmál styrk að upphæð 100 þúsund krónur. Styrkur þessi er veittur félaginu sem viðurkenning og hvatning til áframhaldandi góðra verka í þágu tvítyngdra barna. Ingibjörg Einarsdóttir formaður Gammadeildar afhenti Renötu Emilsson Peskova formanni félagsins Móðurmál, styrkinn á jólafundi Gammadeildar 4. desember síðastliðinn.