Sigrún Aðalbjarnardóttir sæmd heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu

Við í Gammadeild erum afskaplega stoltar af okkar konu. En á gamlársdag var Sigrún Aðalbjarnardóttur prófessor, sæmd heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf í þágu uppeldisvísinda og menntunar. Við óskum henni innilega til hamingju og er hún vel að riddarakrossinum komin. Það er vel við hæfi að minnast þess að fjórar aðrar konur í Gammadeild hafa verið sæmdar heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Rannveig Löve fyrrverandi kennari, fékk riddarakross árið 2011 fyrir brautryðjandastarf á sviði lestrarkennslu og störf að málefnum berklasjúklinga. Anh-Dao Tran, kennslufræðingur og verkefnisstjóri fékk riddarakross árið 2006, fyrir störf í þágu nýrra Íslendinga og íslensks fjölmenningarsamfélags. Árið 2000 fékk Vilborg Dagbjartsdóttir, kennari og rithöfundur, riddarakross fyrir fræðslu og ritstörf. Og árið 1999 fékk Gerður G. Óskarsdóttir, fræðslustjóri, riddarakross fyrir störf að fræðslu- og skólamálum.