Stefanía Arnórsdóttir félagi í Gammadeild er látin.
Stefanía Arnórsdóttir félagi í Gammadeild (áður Betadeild) lést þann 11. september 2026.
Stefanía fæddist þann 9. mars 1945 á Sauðárkróki, þar sem hún ólst einnig upp. Hún stundaði nám við Menntaskólann á Akureyri og lauk þaðan stúdentsprófi. Stefanía bjó í Freiburg í Þýskalandi í sex ár ásamt eiginmanni sínum. Þar stundaði hún nám í þýsku og rússnesku.
Eftir að heim kom settust þau að á Akureyri. Stefanía gerðist þýskukennari við Menntaskólann á Akureyri, við góðan orðstír. Menntamálin áttu hug hennar allan og voru henni falin ýmis verkefni við félags – og menntamál. Hún var mikil útivistarkona, gekk mikið og hjólaði bæði innan lands og utan. Árið 1991-92 stundaði Stefanía nám í bókasafns- og upplýsingatækni við
Háskóla Íslands. Eftir að hún fluttist til Reykjavíkur, vann hún sem bókasafnsfræðingur við Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn uns hún fór á eftirlaun.
Stefanía gerðist félagi í Beta deild Delta Kappa Gamma á Akureyri árið 1993. Hún flutti sig yfir í Gamma deild er þau hjónin fluttu suður til Reykjavíkur. Stefanía var ritari Gammadeildar árin 2002-2004 og varaformaður 2004-2006 en allt sem hún tók sér fyrir hendur vann hún af heilindum og alúð. Síðustu æviárin átti Stefanía við erfið veikindi að stríða.
Eftirlifandi eiginmaður Stefaníu er Jón Björnsson sálfræðingur og fyrrverandi félagsmálastjóri hjá Akureyrarbæ. Þau eignuðust börnin Ugga og Höllu. Útför Stefaníu hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Félagskonur í Delta Kappa Gamma kveðja Stefaníu með virðingu og þakklæti og senda fjölskyldu hennar dýpstu samúðarkveðjur.