Jónína fékk styrk úr The Lucile Cornetet Professional Development Award

Það er gaman að geta sagt frá því að Jónína Hauksdóttir formaður deildarinnar fékk á dögunum 1.057 dollara styrk úr Lucile Cornetet sjóðnum, nánar tiltekið þeim hluta hans sem kallast Individual Awards for Professional Development. Sá hluti sjóðsons styrkir konur sem vinna í fræðslustörfum (ekki bara DKG konur) til að sækja ráðstefnur og aðra viðburði er tengjast menntun (Conferences, Seminars, Lecture series, National certification, Online courses, Workshops and other non-degree programs).

Jónína fékk styrkinn til að sitja námskeið um Jákvæðan aga (Positive discipline). Námskeiðið hét ACT (Advanced candidate training) og var haldið í fjóra daga í Morristown í New Jersey frá 26.–30. mars 2014. Námskeiðið veitir henni aukin réttindi í innleiðingu þessarar agastefnu sem er henni mikilvægt þar sem hún leiðir innleiðinguna í sínum leikskóla. Auk Jónínu sátu þrír aðrir Íslendingar þetta sama námskeið. Árið 2010 sótti Jónína sambærilegt námskeið ásamt sjö öðrum Íslendingum til að fá grunnréttindin.

Um leið og við óskum Jónínu til hamingju með styrkinn hvetjum við Betasystur (og aðrar konur í fræðslustörfum) til að notfæra sér þá sjóði sem við höfum aðgang að og sækja um styrki.
Nánari upplýsingar um sjóðinn eru á þessari slóð: http://www.dkgef.org/awards.html