30 ára afmæli Betadeildar

Beta-deild Delta Kappa Gamma, félags kvenna í fræðslustörfum, var stofnuð á Akureyri 2. júní 1977. Deildin átti því 30 ára afmæli 2007 og fagnar þeim áfanga ásamt landssamtökunum því þau voru stofnuð sama ár. Það má því í raun segja að það hafi verið tvöfaldur fögnuður hjá Beta-systrum þetta árið.

Auk þess að fjölmenna á landssambandsþing sem haldið var að Reykholti í Borgarfirði þar sem deildin tók þátt í ýmsum uppákomum í tilefni afmælisins, var ákveðið að halda veglega upp á afmælisdaginn hér heima en svo heppilega vildi til að 2. júní bar upp á laugardag og því auðveldara um vik að gera daginn eftirminnilegan. 

Sú hefð hefur skapast hjá Betadeild að heiðra konu á stórafmælum deildarinnar, konu sem lagt hefur mikið af mörkum til menntunar og/eða menningar á okkar svæði. Fyrir valinu að þessu sinni varð Heiðdís Norðfjörð barnabókarithöfundur með fleiru fyrir framlag hennar til barnamenningar. Dagskrá afmælisdagsins hófst því á veitingastaðnum Friðriki V þar sem Heiðdísi var veitt viðurkenning og félagskonur ásamt Heiðdísi og gestum hennar borðuðu saman léttan hádegisverð. Þess má geta að Ingibjörg Einarsdóttir landsforseti kom sérstaka ferð hingað norður til að vera með okkur þennan dag.

 

Að þessari athöfn lokinni héldu Betasystur  sem leið lá í rútu til Húsavíkur undir fagmannlegri leiðsögn einnar Betasysturinnar sem ættuð er frá Húsavík. Á Húsavík var m.a. farið í Safnahúsið og á Hvalasafnið. Húsvíkurkirkja var skoðuð sem og skrúðgarðurinn við Búðará. Betasystirin Hanna Salómonsdóttir sem er forstöðukona sambýlis fatlaðra á Húsavík bauð svo í kaffi og afmæliskringlu á sambýliið en heimilsfólk var í sumarbústaðaferð þessa helgina. Deginum lauk svo á því að borðaður var hátíðarkvöldverður á veitingahúsinu Gamla bauk. Eftir góðar veitingar héldu Betasystur heim um kl. 22 um kvöldið eftir velheppnaðan dag.

Fleiri myndir frá afmælinu má sjá í myndaalbúminu.

 


Síðast uppfært 15. apr 2017