Stofnun Betadeildar



Betadeild sem er deild númer tvö sem stofnuð er hér á Íslandi, var stofnuð 2. júní 1977. Stofnfélagar voru konur úr Barnaskóla Akureyrar, Lundarskóla, Hrafnagilsskóla, Laugalandsskóla og Þelamerkurskóla. Þáverandi forseti landssambandsins Dr. Þuríður Kristjánsdóttir flutti stofnræðuna. Á þessum stofnfundi var kosin fyrsta stjórn deildarinnar. Hún var svona skipuð: Edda Eiríksdóttir, formaður, Ingibjörg Auðunsdóttir, varaformaður, Jóhanna Sigrún Þorsteinsdóttir, ritari og Hanna Salómonsdóttir og Margrét Eggertsdóttir meðstjórnendur.


Úrklippa um stofnun deildarinnar (uppruni óviss)

Stofnfélagar samkvæmt þessari úrklippu:
Edda Eiríksdóttir, Elín Anna Kröyer, Guðný Magnúsdóttir, Guðríður Eiríksdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Hólmfríður Guðmundsdóttir, Ingibjörg Auðunsdóttir, Ingibjörg Jónsdóttir, Jenný Karlsdóttir, Jóhanna Sigrún Þorsteinsdóttir, Lilja Sigurðardóttir, Margrét Albertsdóttir, Margrét Eggertsdóttir, Margrét Kristinsdóttir, Rósa Árnadóttir, Valgerður Elín Valdimarsdóttir, Þórlaug Arngrímsdóttir, Þórunn Bergsdóttir.

Jóhanna Sigrún Þorsteinsdóttir sem sat í fyrstu stjórn deildarinnar tjáði okkur að þær Hólmfríður Guðmundsdóttir, Ingibjörg Jónsdóttir og Rósa Árnadóttir hefðu aðeins verið á blaði yfir hugsanlega félaga en aldrei mætt á fundi deildarinnar þannig að þær teljast varla vera stofnfélagar. Einnig er ekki munað til þess að það hafi verið tvær Guðrúnar Jónsdætur svo sennilega er einhver ruglingur þar.


Síðast uppfært 25. jún 2026