Alþjóðadagur kennara 5. október 2020

Fyrir hönd Beta- og Mýdeilda innan Delta Kappa Gamma Society International, var búið að undirbúa málþing vegna Alþjóðadags kennara 5. október 2020 á Akureyri. Af því verður ekki vegna aðstæðna í samfélaginu. Í staðinn er öllum kennurum á landinu send kveðja með samræðu Inga Jóhanns Friðjónssonar, leikskólakennara og BA í heimspeki, sem hann tók við elstu börnin í Lundarseli á Akureyri síðastliðið vor. Samræðan snérist um hvernig börnunum leið meðan fyrsta bylgja Covid-19 stóð yfir í samfélaginu.

Ingi Jóhann útbjó rúmlega 5 mínútna myndband af svörum nokkurra barna sem má sjá og heyra með því að smella á myndina hér fyrir ofan. Í raun spönnuðu viðtölin yfir 90 mínútur við 21 viðmælanda (öll svör barnanna komust ekki fyrir í myndbandinu). Börnin fengu val um að taka þátt í spjallinu og reynt var eftir fremsta megni að fá upplýst samþykki fyrir því að nota viðtölin við myndbandsgerðina. Auðvitað voru svörin misjöfn og alfarið út frá reynsluheimi barnanna, þar sem leitast var við að komast að þeirra upplifun með opnum spurningum.

Af samtölunum má draga þá ályktun að þau börn sem mættu meira í leikskólann í apríl og maí höfðu minni áhyggjur af ástandinu en þau börn sem voru aðallega heima. Sum börnin fundu fyrir leiða á að hitta ekki vini sína í leikskólanum og höfðu áhyggjur af heilsu fjölskyldunnar. Öðrum leið vel og það mátti líka greina í þessu spjalli við börnin að þau nutu sín í minni hópum og í ró með vinum sínum í leikskólanum. Greinilegt er að faraldurinn hafði/hefur áhrif á tilfinningalíf barnanna. Þau virðast meðtaka býsna mikið  umræðuna í þeirra nærumhverfi.

Með bestu kveðju til allra kennara:

Björg Sigurvinsdóttir, Mýdeild
Erna Gunnarsdóttir, Betadeild
Magnea K. Helgadóttir, Mýdeild
María Steingrímsdóttir, Betadeild
Sesselja Sigurðardóttir, Mýdeild