Fundur á Egilsstöðum

Fundur verður haldinn fimmtudaginn 17. mars klukkan 18:00 á Gistihúsinu á Egilsstöðum. Dagskrá fundarins:
1. Inngangsorð formanns, Hrefnu Egilsdótur
2. Orð til umhugsunar, Guðlaug Árnadóttir
3. Umræða um framlag okkar á vorþing samtakanna í maí.
4. Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir flytur erindi um "Heilsueflandi skóla".
5. Kvöldverður
6. Farið verður á sýninguna í Húsi handanna þar sem sýndir eru kollarnir (stólarnir) sem liðsmenn þorpsins hafa verið að vinna að.
7. Lára Vilbergsdóttir kynnir starfsemi þorpsins.