Aðalfundur 27. maí 2026

Félagsfundur og aðalfundur í Z-deild Delta Kappa Gamma haldinn á skrifstofum Múlaþings, miðvikudaginn 27.maí kl. 17:00

Mættar voru: Björg Þorvaldsdóttir, Guðmunda Vala Jónasdóttir, Unnur Óskarsdóttir, Hrefna Egilsdóttir,
Kristjana Guðmundsdóttir, Sigríður Herdís Pálsdóttir, Brynja Garðarsdóttir, Halldóra Baldursdóttir,
Jórunn Sigurbjörnsdóttir, Ólafía Þ Stefánsdóttir, Steinunn Lilja Aðalsteinsdóttir, Sigurbjörg Hvönn
Kristjánsdóttir, Ruth Magnúsdóttir

Dagskrá:
1. Fundarsetning
2. Orð til umhugsunar
3. Aðalfundur Z-deildar
Skýrsla stjórnar
Reikningar
Kosning stjórnar
Árgjald
Önnur mál

4. Kynning á fræðslu og lýðheilsusviði Múlaþings
Ólafía formaður setti fundinn. Fundurinn var undirbúinn af Sigurbjörgu, Siggu Dís og Hrefnu.
Hrefna kveikti á kertum og las markmiðin.
Sigga Dís var með orð til umhugsunar og gerði þakklæti að umtalsefni bæði á persónulegum og
almennum nótum. Hún minnti félagskonur á að muna að þakka fyrir hverdagslega hluti í lífinu. Þar sem
ekkert er sjálfsagt.
Þá hófst aðalfundur Z-deildar.
Ólafía gerði tillögu að því að Sigga Dís tæki að sér fundarstjórn og Ruth myndi rita fundargerð. Það var
samþykkt.
Skýrsla stjórnar: Ólafía flutti skýrslu stjórnar og fór yfir starf deildarinnar sl. Tvö ár.
Reikningar: Helga Guðmundsdóttir gjaldkeri hafði sent út reikninga fyrir fundinn til kynningar. Þeir voru
einnig lagðir fram til kynningar. Reikningar samþykktir. Ólafía ræddi að Helga hefði vakið athygli á að ekki
væru kjörnir skoðunarmenn reikninga. Gerð var tillaga að Guðmundu Völu sem skoðunarmanni og það
samþykkt.
Kosning stjórnar: Ólafía lætur af formennsku og eru henni þökkuð störf sín sem formaður. Brynja gefur
kost á sér í formannsstólinn. Sigurbjörg og Ruth, gefa kost á sér sem meðstjórnendur. Helga
Guðmundsdóttir gefur kost á sér í starf gjaldkera áfram. Ný stjórn var samþykkt með lófataki.
Árgjald: Ólafía gerir tillölgu að því að árgjaldið verði áfram 11.000 kr. og var það samþykkt samhljóða.
Allar félagskonur hvattar til að ganga frá greiðslu sem fyrst.
Önnur mál: voru engin.
Lauk þar með aðalfundi Z-deildar.

Þá var komið að öðru efni fundarins. Kynningu Sigurbjargar Hvannar fræðslu og lýðheilsustjóra
Múlaþings.
Sigurbjörg fór yfir áherslur í starfi skólaþjónustu, mannauð, frístundaþjónustu, forvarnir og íþrótta og
æskulýðsmál. Fjörugar umræður um íslenska málstefnu, málumhverfi á leikskólum og málþroska
almennt. Félagskonur þökkuðu áhugaverða og víðfeðma kynningu með lófataki.
Að loknu erindi Sigurbjargar voru snæddar veitingar frá Lunu- kaffihúsi. Sigga Dís slökkti á kertunum og
þakkað félagskonum fyrir vel sóttan fund.
Fundi slitið kl. 19:10

Ruth Magnúsdóttir


Síðast uppfært 29. maí 2026