Aprilfundur Zetadeildar var haldinn í Hallormsstaðaskóla

Aprilfundur Zetadeildar var haldinn í Hallormsstaðaskóla 2. april 2025 í blíðskapar veðri.

Mættar: Björg, Brynja, Guðrún, Helga Magnea, Hrefna, Jórunn og Ruth.

Rut kveikti á kertum og las upp markmið samtakanna. Í framhaldinu flutti hún orð til umhugsunar. Orðin fjölluðu um þróunarverkefnið Heillaspor sem Egilsstaðaskóli innleiðir nú í starfsemi skólans, siðfræði umhyggjunnar er þar áberandi og hugtakið alúðarfesta leikur stórt hlutverk í innleiðingunni.

Kynning á starfsemi Hallormsstaðaskóla var næst á dagskrá. Bryndís Fiona Ford skólastýra rakti sögu skólans og ýmsar breytingar sem hafa verið gerðar á starfseminni frá upphafi, alltaf hafi verið haldið í sömu grunngildin og námskráin svipuð, byggð á gömlum grunni. Hún nefndi sem dæmi um fjölbreytni í námi og kennslu skólans; heilbrigðisfræði, vefnað, fatahönnun, virkjun bæjarlæksins, sláturstörf, kjötvinnslu, smalastörf, ullarvinnslu, haustuppskeru, kryddvinnslu, hampvinnu og listir og svo má áfram telja. Frá 2014 þegar hún tók við skólanum hefur mikil áhersla verið lögð á skapandi sjálfbærni og nýsköpun þar sem unnið er úr náttúrulegum hráefnum úr nærsamfélaginu. Haustið 2025 verður Hallormsstaðaskóli kominn undir menntavísindadeild Háskóla Íslands þar sem kennd verður menntun til sjálfbærni.

 Að kynningu lokinni var reidd fram heimalöguð súpa með heimabökuðu súrdeigsbrauði og með því. Slökkt var á kertum, spjallað og konur héldu heim á leið.

Fundargerð ritar
Hrefna Beck Egilsdóttir

 

 


Síðast uppfært 28. maí 2025