Fundargerð 16. apríl 2026
Fundargerð 16. apríl 2023
Fundur haldinn á Fáskrúðsfirði.
Mættar eru: Helga Guðmunds, Helga Magnea Steinsson, Sigríður Herdís Pálsdóttir, Ruth Magnúsdóttir, Hrefna Egilsdóttir, Brynja Garðarsdóttir, Halldóra Baldursdóttir, Jórunn Sigurbjörnsdóttir, Ólafía Þ Stefánsdóttir, Steinunn Lilja Aðalsteinsdóttir, Guðrún Ásgeirsdóttir. Enn fremur er mætt Kristjana Guðmundsdóttir.
Dagskrá fundarins.
Kynning á starfsemi Gallerí Kolfreyju - handverksmarkaði á Fáskrúðsfirði
Kveikt á kertum
Lesin markmið DKG
Orð til umhugsunar
Inntaka nýs félaga
Fundarslit
Við byrjuðum fundinn á að kynnast starfsemi Gallerí Kolfreyju í fallegu uppgerðu húsi Kaupfélags Fáskrúðsfjarðar. Gallerí Kolfreyja handverksmarkaður hefur aðsetur á neðri hæð hússins sem einnig er safn frá dögum verslunar í húsinu. Á efri hæð hússins er fundarsalur sem stjórn Loðnuvinnslu Kaupfélags Fáskrúðsfjarðar fundar. Boðið var upp á kaffi og smákökur. Til sölu var fallegt handverk félagskvenna í Kolfreyju.
Síðan var haldið að kaffi Sumarlínu þar sem við héldum fund. Fundurinn er í umsjón Halldóru, Jórunnar og Helgu Magneu.
Halldóra kveikti á kertunum þremur um vináttuna, trúmennskunnar og hjálpseminnar.
Jórunn las fyrir okkur markmið DKG
Helga var með orð til umhugsunar og talaði út frá orðinu þakklæti sem á vel við í dag þar sem við tökum á móti nýrri félagskonu. Sjálf hefur hún fylgt DKG í þrjátíu ár og fór hún yfir það þegar hún fékk boð frá stjórn Zeta deildar sem stofnuð var á Hallormsstað árið 1992. Hún segist hafa fengið mörg gefandi tækifæri innan DKG samtakanna í gegnum tíðina, m.a að sitja í aðalstjórn, sækja erlendar ráðstefnur, vera hluti af erlendu samstarfi, skipuleggja erlendar ráðstefnur innanlands, vera formaður Zetadeildar auk þess að taka þátt í mörgu skemmtilegur og fróðlegu samstarfi því tengdu.
Helga minntist á það hversu mikilvægt væri fyrir okkur að víkka út þekkingarrammann og bjóða konum úr öðrum fræðslugeirum eins og prestum, sálfræðingum og/eða fræðslustjórum í DKG.
Síðan talaði hún um verkefni okkar út frá þeim markmiðum sem við lesum upp á hverjum fundi.Hún minntist á það hversu starf okkar sem kennarar hafi breyst í áranna rás og sagðist hafa séð frétt í sjónvarpinu um danskan grunnskóla þar sem tölvur og símar nemenda voru læst inn í skáp og tekið upp blað og blýantur. Nemendur virtust frekar sáttir við tilhögunina.
Helga þakkar félagskonum sem tilheyra þessum félagsskap og gefa honum gildu og merkingu í okkar dýrmæta DKG samfélagi.
Kristjana Guðmundsdóttir kennari var tekin inn í DKG skv. Uppgefinni inntökuathöfn nýrra félaga. Kristjana er boðin velkomin í zetadeild DKG og í lokin sungu félagskonur Ó blessuð vertu sumarsól við ljóð Páls Ólafssonar við lag Inga T Lárussonar sem báðir eru Austfirðingar.
Fundi var slitið með því að slökkva á kertunum þremur. Síðan borðuðu félagskonur saman og spjölluðu.
fundargerð ritar
Ólafía Þ. Stefánsdóttir
Síðast uppfært 20. apr 2026