Fundargerð 18. mars 2026

Fundargerð 18. mars 2026

Fundur haldinn í Bókasafni Múlaþings, Egilsstöðum kl. 17:00

Mættar eru: Guðmunda Vala Jónasdóttir, Helga Guðmundsdóttir, Guðrún Ásgeirsdóttir, Ruth Magnúsd, Halldóra Baldurs, Sigríður Herdís, Jórunn Sigurbjörns.  Gestur á fundi, Kristjana Guðmundsdóttir.

Umsjón fundar: Helga G, Guðrún og Guðmund Vala.

Fundarstjóri: Guðmunda Vala Jónasdóttir.

Kveikt á kertu og markmið lesin: Guðrún Ásgeirsdóttir

Orð til umhugsunar: Helga Guðmundsdóttir

Kynning á Bókasafni Múlaþings

Kolbrún Erla Pétursdóttir bókasafns og upplýsingarfulltrúi kynnti starfsemi safnsins.

Bókasafn Múlaþings var opnað árið 1995 og er nú komið að tímamótum þar sem þörf er á stækkun. Unnið er að byggingu nýs safnhúss sem áætlað er að ljúki árið 2027. Kolbrún Erla hefur yfirumsjón með öllum söfnum í Múlaþingi. Í nýju húsnæði mun skapast betra rými, meðal annars fyrir varðveislu muna, auk þess sem bókasafnið sjálft flyst á aðra hæð og núverandi staðsetning verður nýtt sem sýningarrými. Aðstaða starfsfólks batnar til muna og aðgengi, meðal annars með því að gera notendum kleift að sækja bækur utan hefðbundins opnunartíma.

Bókasöfn gegna mikilvægu hlutverki í samfélaginu og samkvæmt lögum eiga öll sveitarfélög að reka slíka þjónustu. Þau eru svokallað „þriðja rými – staður utan heimilis og vinnu þar sem fólk getur komið við, dvalið, lært eða unnið án endurgjalds.

Safnið á í öflugu samstarfi við leik- og grunnskóla og býður upp á fjölbreytta þjónustu. Þar má meðal annars sækja tungumálakaffi á vegum Rauða krossins, nýta aðstöðu til náms og fjarvinnu og fá lánað tæki eins og blóðþrýstingsmæli og saumavél.

Starfsemin er fjölbreytt og lifandi. Árið 2025 voru haldnir um 70 viðburðir og gestum fer fjölgandi. Þar má nefna sumarlestur, sem hefur vaxið verulega, bangsagistingu, prjónagöngu, námskeið og skapandi viðburði, auk sérstaks viðburðar um Jane Austen og „blind stefnumót við bækur“ á Valentínusardaginn.

Safnið er virkt á samfélagsmiðlum og miðlar efni til notenda sinna. Þrátt fyrir takmarkað fjármagn hefur tekist að byggja upp öfluga starfsemi með styrkjum. Breytt viðhorf endurspeglast í starfseminni – bókasafnið er orðið lifandi rými þar sem röddin fær að hljóma, og barnahorn safnsins nýtur sérstakra vinsælda.

Orða til umhugsunar

Helga sagði frá námskeiði sem hún fylgir þessar vikurnar undir handleiðslu Sigurborgar Kr. Hannesdóttur, sem bjó og starfaði lengi á Egilsstöðum. Námskeiðið ber heitið TIL FUNDAR VIÐ FORMÓÐUR. Hún hefur í þessu samhengi aflað mikilla upplýsinga um föðurömmu sína sem dó ung og Helga þekkti því aldrei. Hún saknar þess að hafa ekki meira af persónulegum upplýsingum til að fylla í myndina sem hún er að draga upp af þessari formóður sinni, en nokkuð auðvelt er að finna staðreyndir um lífsferli í aðgengilegum gögnum sem finna má á netinu. Helga sagði að þessi vinna hefði vakið sig til umhugsunar um hversu mjög gengnar kynslóðir ættmenna skiptu okkur máli, hefðu mótað okkur og gefið okkur margvíslegt veganesti og þá um leið að það væri hollt að hugsa til þess að við skiptum á sama hátt komandi kynslóðir máli.

Slökkt á kertum og fundir slitið kl. 19:00
Fundargerð ritar Guðrún Ásgeirsdóttir


Síðast uppfært 19. mar 2026