Vorfundur í Golfskálanum Grænanesvelli 21. maí 2025
Vorfundur haldinn á Neskaupstað í Golfhúsinu Grænanesvelli 21. maí 2025
Mættar eru: Ólafía, Steinunn, Helga Magnea, Guðrún, Ruth, Sigríður Herdís, Brynja, Sigurbjörg.
Fundurinn er í umsjón Brynju, Guðrúnar og Sigurbjargar. Brynja kveikti á kertunum um vináttu, trúmennsku og hjálpseminar. Guðrún las markmið DKG.
Orð til umhugsunar. Guðrún las skilgreiningu á orðinu Gleði sem hún hafði beðið gervigreindina um að finna. Gleðina finnu við í ótal mörgu T.d þegar við heyrum aðra hlæja, gleðin leyndi sér ekki þegar barnið fékk gjöfina, það var mikil gleði á tónleikunum, einhver hoppar af gleði, ég finn fyrir djúpri gleði og svo mætti lengi telja.
Í lokin spunnust umræður um notkun gervigreindar. Ruth sagði hana frábæra í kennslunni þar sem hægt væri að biðja gervigreindina um að gera félagsfærnisögur og margt annað.
Ólafía ræddi um árgjaldið og mikilvægi þess að eiga smá varasjóð til þess að standa skil á útgjöldum s.s blómakaupum og öðru. Ákveðið að greiða 11.000 í árgjald.
Eftir þetta fór Brynja með okkur út á golfvöllinn þar sem hún sýndi okkur púttvöllinn og reyndu systur sig í að pútta. Síðan var gengið út á völlinn og prófað að pútta í holu. Síðan sýndi hún okkur æfingasvæðið og þar var tekið til við að prófa að slá kúlur. Þetta var hin besta skemmtun í alla staði. Fallegur völlur og vel hirtur. Öll aðstaða til fyrirmyndar. Takk fyrir góðan og skemmtilegan fund.
Eftir fundinn var haldið í Beituskúrinn en við héldum fund þar fyrr í vetur. Núna sátum við úti á bryggju í brakandi blíðu og góðu veðri og borðuðum saman. Það var margt spjallað og hlegið. Allir héldu svo glaðir heim á leið eftir að hafa faðmast og þakkað fyrir góðan vetur. Við hlökkum til næsta starfsárs og erum allar fullar áhuga að efla starfið og fá til okkar fleiri konur.
Ólafía Stefáns tók saman
Síðast uppfært 28. maí 2025