Skýrsla Stjórnar 2024-2026

Skýrsla zeta deildar DKG 2024-2026


Ný stjórn var skipuð á Seyðisfirði í ágúst 2024. Stjórnina skipa Ólafía Þ.
Stefánsdóttir formaður, Ruth Magnúsdóttir, Brynja Garðarsdóttir meðstjórnendur og
Helga Guðmundsdóttir gjaldkeri.

Stjórnin kom saman stuttu eftir aðalfund og setti saman starfsáætlun fyrir árin 2024-
2025. Gefist hefur vel að setja konur á ákveðna fundi og sjá þær um skipulag funda
og fundastað. Félagskonur eru 15, ein hætti á tímabilinu og tvær nýjar hafa bæst við
hópinn. Þannig að í dag telur deildin okkar 16 félagskonur.
Á tímabilinu hafa verið haldnir 10 fundir víðsvegar um Austurland. Stjórnarfundir eru
4 auk þess hefur stjórnin verið í sambandi rafrænt. Fundarsókn hefur verið nokkuð
góð 10-12 konur mæta venjulega á fundi okkar. Við höfum ekki þurft að fella niður
fundi vegna færðar en frekar fært þá til ef þurfa þykir.
Árið 2024
Fyrsti félagsfundur nýrrar stjórnar var haldinn í Neskaupstað þar sem við fengum
kynningu á Beituskúrnum. Björg var með orð til umhugsunar og ræddi hún um
mikilvægi hvers og eins að tilheyra einhverjum hópi. Á fundinum var tekin inn ný
félagskona, Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir. Næsti fundur okkar var í Fellabæ þar
sem við fengum kynningu á starfsemi Sólarinnar sem er frístundaheimili fyrir börn
sem hafa þörf fyrir stuðning. Helga Guðmunds var með orð til umhugsunar og gerði
föruneyti barns um jól að sínu umtalsefni.
Árið 2025
Á nýju ári var fundur á Reyðarfirði þar sem við heimsóttum Esther Ösp
Gunnarsdóttur sem vinnur leirverk í bílskúr við heimili sitt. Sigríður Herdís var með
orð til umhugsunar og ræddi um orðið birta og hvernig hún getur í dagsljós breytt.
Á vordögum hittumst við í Hallormsstað og fengum leiðsögn og kynningu á sögu
skólans. Ruth var með með orð til umhugsunar og ræddi Heillaspor sem er
þróunarverkefni Egilsstaðaskóla. Svo í maí sama ár hittist deildin í Golfskálanum í
Neskaupstað. Brynja fór með okkur um völlinn og reyndu félagskonur að pútta og
slá golfbolta. Guðrún ræddi um skilgreiningar á orðinu gleði.
Að hausti var fyrsti fundurinn í Tehúsinu á Egilsstöðum. Á fundinum sögðu
félagskonur frá upplifun sinni af fyrsta kvennafrídeginum. Virkilega áhugaverðar
umræður um upplifun þessa dags. Sumar okkar mundu lítið eftir deginum enda voru
þær ungar að árum þá, aðrar voru líka ungar að árum að stíga sín fyrstu skref í
kennslu. Á fundinn mætti einn gestur. Steinunn var með orð til umhugsunar og las
hún upp fyrir okkur úr gamalli kennslubók Uppeldi ungra barna. Hún las kafla um
næringu ungra barna og var mikið hlegið og skeggrætt um allar breytingar sem hafa
orðið á næringu ungra barna.

Næsti fundur var haldinn í Neskaupstað, fórum og kynntum okkur Nytjamarkað sem
sjálfboðaliðar reka og ágóðinn fer til góðra mála í Neskaupstað, á fundinn mætti
gestur sem er ákveðin í að ganga til liðs við DKG. Brynja var með orð til umhugsunar
og talaði hún um nægjusemi sem var gott umhugsunarefni eftir heimsókn okkar í
nytjamarkaðinn.

Árið 2026
Fyrsti fundur nýs árs 2026 var haldinn í Bókasafni Múlaþings á Egilsstöðum. Kolbrún
Pétursdóttir bókavörður sagði frá starfseminni sem er fjölbreytt. Helga Guðmunds
sagði frá námskeiði sem hún tekur þátt í sem ber heitið Til fundar við formóður.
Næst hittumst við á Fáskrúðsfirði og kynntum okkur starfsemi Kolfreyju sem er
handverksmarkaður. Helga Steinsson gerði orðið þakklæti að umtalsefni. Á þessum
fundi var tekin inn ný félagskona sem er ánægjulegt fyrir deildina okkar.
Síðasti fundur okkar er svo aðalfundur og kynning á skólaþjónustu Múlaþings.
Formaður zetadeildar hefur setið haustfundi DKG í Reykjavík tímabilsárin sem
formaður og er það góð upplifun að sitja þessa fundi.
Stjórnin hefur sett saman starfsskrá á haustdögum ár hvert og raðað konum saman
á mánuði. Þetta fyrirkomulag hefur gefist vel og eru þrjár konur sem hafa séð um
fundi yfir veturinn. Að starfa með DKG er mjög skemmtilegt og frábært að sjá hvað
konur hafa verið duglegar að finna áhugaverð efnistök og líka ánægjulegt að ferðast
með fundi á milli staða. Undirrituð hefur samið fréttabréf deildarinnar og sent
útgáfunefnd eða vor og jólafréttabréf. Eins og fram kom hér að framan hefur okkur
fjölgað um tvo félagsmenn og markmiðið er að halda áfram að fjölga í deildinni okkar
og reyna að komast í tuttugu félagsmenn. Ég þakka kærlega fyrir samstarf í
stjórninni og óska nýrri stjórn velfarnaðar.
Seyðisfirði 27. maí 2026
Ólafía Þ. Stefánsdóttir


Síðast uppfært 28. maí 2026