Skýrsla Stjórnar 2022-2024

Skýrsla stjórnar veturinn 2022-2024 hjá z-deild, Delta Kappa Gamma á Austurlandi.

Hauststarfið hefst hjá formanni í Reykjavík á fundi með formönnum deilda í september. Þar voru lagðar línur vetrarstarfið og farið yfir starfsáætlun. Mjög góður fyrirlestur var einnig á þessum fundi meðal annar um styrkleika okkar sem kvenna og hvernig við getum virkjað þá í félaginu okkar, þar sem engin okkar er eins og allar höfum við eitthvað til leggja fram. Sem með öðrum orðum þýðir að við þurfum ekki alltaf að sækja út fyrir deildina okkar til að fræða hver aðra um það sem við kunnum.

Nú starfsárið 2022-2023 einkenndist af ófærð og vonsku veðrum amk þá þaga sem z deilar fundir áttu að vera svo fundir voru færri en til stóð. Áætlað var að halda tvo fundir fyrir áramótin, annan í október og hinn í nóvember og voru þeir báðir. Fyrsti fundur var haldinn í Hommahöllinni í Neskaupstað. Þar fengum við fræðslu um húsið og starfsemi þar og fengum síðan dýrindis fiskisúpu hjá Hákoni Hildibrand. Nóvemberfundur var síðan haldinn á Seyðisfirði þar sem Ólafía Stefánsdóttir sagði okkur skemmtilega sögu um tilurð jólakorta.

Að venju var pása á fundarhaldi í desember og janúar. Þann 1. mars var fundur í Sláturhúsinu á Egilsstöðum þó allar kæmust ekki á fundinn var góður fundur og kynning á starfsemi hússins og góðar móttökur. Mars fundur féll niður vegna dræmara þátttöku.

Vorfundur var haldinn í Verkmenntaskóla Austurlands þar sem Eydís Ásbjörnsdóttir sagði okkur frá skólanum og starfi hans. Þann dag greiddum við svo allar árgjöldin okkar og fórum glaðar út í sumarið.

Stjórn fundaði ekki í raunheimi þennan vetur utan einu sinni í lok september, betra var að ná okkur saman gegnum netheima og gekk það bara nokkuð vel.  

 

Veturinn  2023-2024 hjá z-deild, Delta Kappa Gamma á Austurlandi.

Starf formanns hófst með dásamlegur degi í Reykjavík þann 2. september, þar lagði formaður landssambandsins línur fyrir starfsárið og fór í framkvæmdaáætlun. Ég fór út í eftirmiðdaginn eftir þennan fund með hugmyndir og áætlun um góðan vetur fram undan. Vestanvindurinn tók á móti mér þegar ég gekk um, dagurinn var bjartur og fallegur og vestanvindurinn lék um andlitið og hár þar sem ég gekk en upp Bankastræti og Skólavörðustíg í átt að Listasafni Einars Jónssonar. Búið var að loka safninu en garðurinn var opinn og ég ráfaði þangað inn, ein sog vindurinn væri að leiða mig, Þar staldraði ég við verkið Vernd, verk Einars sem ártalið 1912-1934 er ritað  á. Verkið er lýsandi fyrir okkur sem erum í fræðastörfum, því það breiðir út og umvefur líkt og einkunnarorðin okkar , vinátta trúmennska og hjálpsemi.

Ég er tilbúin í veturinn ójá, alltaf að takbrosandi á móti nýjum verkefnum. Lítið vissi ég á þessari stundu hvað alheimurinn var að setja í fangið á mér. Seinna þetta kvöld dó elskulegur eiginmaður minn, sem hafði verið í hvíldarinnlögn þessa viku svo ég gæti tekið fundinn með fleiri formönnum. Elskulegu z systur takk fyrir góðar kveðjur, stuðning og og skilning. Guðrún þessi elska kom til mín vikunni eftir og við áttum gott tal saman. Elskulega Árný Elíasdóttir formaðurinn okkar sendi mér kveðjur, hafið þökk fyrir. Það er svo mikilvægt að vita af ykkur, þvílík trúmennska.

September 2023 er svona aðeins óskýr í huga mínum, en líklega í byrjun október hitti ég þær stöllur Ólafíu Stefánsdóttur og Jórunni Sigurbjörnsdóttur til að leggja línurnar fyrir veturinn. Þar sem við konu rí z deild dreifumst um Austurland hefur skapast sú hefð að þær sem búa nálægt hver annarri haldi saman fund hvers mánaðar. Í vetur höfum við hist í fjögur skipti þegar þetta er skrifað. Meðal þess sem við höfum gert er að hittast í nýrri byggingu leikskólans Hádegishöfða í Fellabæ og fá leiðsögn um hann ásamt fræðslu um starfsemina þar sem er í anda Reggio Emilila. Þá fengu fundargestir kynningu frá samskipta og útgáfunefnd sem í sitja þær Guðrún Ásgeirsdóttir, Guðmunda Vala Jónasdóttir og Sigríður Herdís Pálsdóttir. Annar vetrarfundurinn var haldinn á Eskifirði þar heimsóttum við listgallerí og vinnustofu Steinunnar Sigurðardóttur sem tók á móti okkur með glæsibrag, veitingum og fræðslu um sína vegferð sem listmálari, þvílík fegurð sem kemur úr penslunum hennar, takk. Þá tökum við okkur pásu með að halda fundi í desember og janúar, bæði vegna anna og annarra starfa og oft á tíðum mjög mikillar ófærðar á milli staða á Austurlandi. Næsti fundur var því haldinn í febrúar á veitingastaðnum Vök. Þær Ruth og stöllur kölluðu fundinn bókafund sem er flott því þar voru félagskonur með tilbúna bókakynningu svo lítið í anda Kiljunnar. Fjórði fundurinn var svo haldinn í Neskaupstað í góðu færi og lítill sem enginn skafrenningur á Fjarðarheiði. Fundurinn var haldinn í Múlanum sem er samvinnuhús nokkurra fyrirtækja og m.a Austurbrúar. Með hefðbundnu fundarhaldi þennan dag kom Steinunn aðeins inn á sögu Delta Kappa Gamma og sagði frá Félaginu. Tveir gestir voru með á fundinum ásamt starfsmanni Austurbrúar henni,  Hrönn Grímsdóttur sem sagði okkur frá Múlanum og starfsemi þar ásamt því að kynna fyrir okkur hvert er hlutverk fræðsluteymis Austurbrúar sem hún sem námsráðgjafi og lýðheilsufræðingur stýrir. Við fengum síðan að skoða húsið og líta inn í kennslustund þar sem íslenskukennsla var í gangi fyrir fólk af erlendum uppruna sem starfar í Neskaupstað. Takk kæru z systur fyrir faglega og flotta fundi í vetur, nú mun stjórn undirbúa Aðalfund í maí eða fyrstu daga júní mánaðar.

Unnur Óskarsdóttir

Formaður setadeildar 2022-2024

 


Síðast uppfært 18. jún 2026