Fundargerð 28. október 2026

 

Deildarfundur í Z-deild DKG, haldinn 28.október 2026 á Seyðisfirði

Fundinn undirbjuggu: Unnur, Halldóra og Ruth.

Mættar: Unnur, Jórunn, Hrefna, Ólafía, Steinunn, Sigga Dís, Brynja og Ruth.

Fundurinn hófst kl. 17:00 með heimsókn á Prentstofuna á Seyðisfirði, þar sem Celia Harrison, forstöðukona Skaftfells miðstöðvar myndlistar á Austurlandi, kynnti tilurð og starfsemi Prentstofunnar fyrir okkur. Prentstofan var áður hluti af Tækniminjasafninu, en eftir skriðuföllin sem eyðilögðu hana, var ákveðið að stofna nýja Prentstofu. Meðal búnaðar er búnaður sem Baltazar Samper heitinn ánafnaði Prentstofunni.

Eftir góða kynningu var haldið upp í Seyðisfjarðarskóla. Þar var kveikt á kertunum (rafmagns) og lesin markmiðin. Unnur var með orð til umhugsunar. Hún gerði að umtalsefni jóga sem hún hefur stundað um áratuga skeið og kynnti jarma jóga. Hún kynnti 5 lífsreglur eða jörmur jógans. Umræður um gildi jóga að lokinni kynningu Unnar.

Brynja formaður tók síðan til máls og sagði frá Framkvæmdaráðsfundi sem hún sótti í Reykjavík. Hún fór yfir það starf sem þar fór fram og það helsta sem er fram undan. Vorráðstefna verður á Akureyri 17.apríl 2027 sem er helgin fyrir Sumardaginn fyrsta. Einnig verður alþjóðleg ráðstefna í Kristjansand í Noregi í sumar.

Slökkt var á kertum og fundi slitið kl 18:20. Eftir það héldu Z-konur á Ölduna og snæddu þar tælenska kókossúpu og brauð áður en haldið var heim um kl. 19:00 eftir vel heppnaðan fund.


Síðast uppfært 06. nóv 2026