Fyrsti fundur í zetadeild, október 2022

Fyrsti fundur í zetadeild var haldinn í Neskaupstað miðvikudaginn 26. okt. 2022 í Sigfúsarhúsi sem nú er oftar nefnt „Hommahöllinni“ Mæting var góð og glatt á hjalla hjá félagskonum.

Sigga Dís sagði frá námskeiði sem fjallaði um það, hvernig æskilegt væri að taka á ofbelti. Fyrirlesarinn var Arnrún Magnúsdóttir og erindið Fræðsla en ekki hræðsla. Forvarnir og aftur forvarnir er það sem þarf gegn ofbeldi strax á leikskólaaldri. Fræða börn um ofbeldi væri jafnmikilvægt og að fræða þau um umferðareglurnar.

Unnur formaður sagði frá ferð á formannafund Delta Kappa Gamma. Hún sagðist hafa lært mikið um félagsskapinn sem hún vissi ekki áður. Við erum fámennasta félagið innan DKG og hvatti hún okkur til að vera duglegar að bjóða konum með okkur á fundi. Markmið að félagskonum fjölgi þetta starfsárið.

Hjónin Hákon Hildibrand og Hafsteinn Hafsteinsson sáu um fræðsluna í þetta sinn. Hákon leiddi okkur um húsið, sem er frá 1894. Þeir hafa umbylt húsinu og reynt að halda í það gamla sem hægt var. og húsið er alveg sérlega fallegt.

Hafsteinn er mikill listamaður og mikill teiknari bæði á pappír og í tölvu. Hann hefur teiknað og skrifað nokkrar bækur og ein „Enginn sá hundinn“ var tilnefnd til barnabókaverðlauna Norðurlandaráðs og þýdd á ensku og dönsku. Hann sagði frá sinni listsköpun og sýndi okkur skissubækurnar sínar.

Í lokin fengum við heimalagaða fiskisúpu, nýbakað brauð, kaffi og hjónabandssælu.