Aðalfundur Zetadeildar haldinn á Egilsstöðum 27. maí 2026

Aðalfundur Zetadeildar Delta Kappa Gamma haldinn á Egilsstöðum

Á fundinum fór fram kjör nýrrar stjórnar fyrir starfsárið 2026–2028.

Úr stjórn ganga þær Ólafía Stefánsdóttir, formaður, og Jórunn Sigurbjörnsdóttir, meðstjórnandi. Nýr formaður deildarinnar er Brynja Garðarsdóttir. Meðstjórnendur eru Ruth Magnúsdóttir og Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir. Helga Guðmundsdóttir gegnir áfram starfi gjaldkera og Guðmunda Vala Jónasdóttir er endurskoðandi reikninga. Fráfarandi stjórn voru færðar þakkir fyrir vel unnin störf í þágu deildarinnar.

Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum flutti Sigga Dís hugvekju þar sem hún fjallaði um mikilvægi þakklætis, bæði í persónulegu lífi og samfélaginu almennt. Hún hvatti félagskonur til að staldra við og þakka fyrir hið hversdagslega, enda væri ekkert sjálfsagt í lífinu.

Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir, fræðslu- og lýðheilsustjóri Múlaþings og félagi í Zeudeild, kynnti helstu áherslur í starfi sínu. Hún fjallaði meðal annars um skólaþjónustu, mannauðsmál, frístundaþjónustu, forvarnir og íþrótta- og æskulýðsmál. Í kjölfarið urðu líflegar umræður um íslenska málstefnu, málumhverfi leikskóla og málþroska barna.

Fundurinn einkenndist af góðum anda, fróðlegum umræðum og sterkum áhuga félagskvenna á þeim málefnum sem efst eru á baugi í mennta- og samfélagsmálum.