Apríl fundur á Hallormsstað

Annan apríl héldu zeta konur fund á Hallormsstað í blíðskapar veðri.
Það er alltaf gaman að koma í heimsókn á Hallormsstað og sama var í þetta sinn þegar Bryndís Fiona Ford skólastýra tók á móti okkur og rakti sögu skólans og þær breytingar sem hafa verið gerðar á starfseminni frá upphafi þó grunngildin hafi alltaf verið þau sömu.
Frá 2014 hefur meiri áhersla verið lögð á skapandi sjálfbærni og nýsköpun þar sem unnið er úr náttúrulegum hráefnum úr nærsamfélaginu. Haustið 2025 verður Hallormsstaðaskóli kominn undir menntavísindadeild Háskóla Íslands þar sem kennd verður menntun til sjálfbærni.