Vorblíða á vorfundi í Neskaupstað

Vorfundur zeta deildar var haldinn í Neskaupstað í Golfskálanum á Grænanesvelli 21. maí s.l.

Að loknum hefðbundnum fundarstörfum var haldið út á golfvöll í vorblíðuna þar sem Brynja fór með hópinn í  golfkennslu. Hún sýndi okkur púttvöllinn og reyndu systur sig í að pútta. Ekki var annað að sjá en að fjölga myndi í golfklúbbum hér fyrir austan eftir þessa góðu kennslu. Þetta var hin besta skemmtun og að golfkennslu lokinn var haldið út í bæ þar sem við nutum kvöldsólarinnar á Beituskúrnum í mat og spjalli. Allar héldu við svo glaðar heim á leið eftir að hafa faðmast og þakkað fyrir góðan vetur. Við hlökkum til næsta starfsárs og erum allar fullar áhuga að efla starfið og fá til okkar fleiri konur.