Nóvemberfundur 2026 haldinn á Hótel Eyvindará á Egilsstöðum

Jónína Lovísa gestur á nóvemberfundi zetadeildar

Jónína Lovísa hlaut nýverið tilnefningu til Íslensku menntaverðlaunanna í flokknum framúrskarandi kennsla. Hún sagði frá starfi sínu og fundarkonur nýttu tækifærið til að spjalla við hana um menntamál. Jónína hyggst þiggja boð um inngöngu í Zetadeildina og félagskonur hlakka til að bjóða hana velkomna í hópinn. Að fundi loknum settust fundarkonur saman yfir kjúklingasúpu og þá bar jólabækurnar á góma.