Síðasti fundur þessa starfsárs verður haldinn þriðjudaginn 28. apríl kl. 18:30 – 21:00 á Grand hóteli við Sigtún

Kæru Etasystur! Síðasti fundur þessa starfsárs verður haldinn  þriðjudaginn 28. apríl kl. 18:30 – 21:00 á Grand hóteli við Sigtún. Gestur fundarins verður Hulda Þórisdóttir,  doktor í félagslegri sálfræði og kennari við Háskóla Íslands.  Umfjöllunarefni er umræðuhefðin í samfélaginu.  Orð til umhugsunar flytur Magnea Ingólfsdóttir.  Tilkynningar stjórnar. Önnur mál.  Kjúklingaréttur – kaffi og konfekt á 2500 krónur !  Hlökkum til að eiga saman góða stund. Vinsamlega tilkynnið mætingu/forföll sem fyrst í netfang bryngu@isl.is Með kærri kveðju, Stefanía Valdís, Magnea, Kristín Helga, Bryndís, Anna Sigríður.