Starfsáætlun Etadeildar 2014–2015

Vetrarstarf Etadeildar hófst laugardaginn 4. október. Níu konur nutu hressingargöngu í  Sjálandshverfi Garðabæjar. Að göngu lokinni hófst fundur með dagskrá. Við áttum góðar samræður um vetrarstarfið og nutum þess að hittast.
 
Við ræddum um áherslur starfsins og vorum sammála um að beina ljósi einkum að tveimur síðustu markmiðum DKG, sem eru víð og hafa marga snertifleti. 
 
„Að efla persónulegan og faglegan þroska félagskvenna og hvetja þær til virkni“
„Að fræða félagskonur um það sem er efst á baugi í efnahagsmálum, félagsmálum, stjórnmálum og menntamálum og stuðla með því að vaxandi skilningi og virkri þátttöku þeirra í samfélagi þjóðanna“ 
Okkur sýnist áhugavert að beina sjónum að þjóðmálum á víðum grunni og fá til okkar fyrirlesara sem varpa nýju ljósi á mál, opna gáttir, fara út fyrir kennslufræðilega rammann, sem við erum kannski margar eðlilega svolítið fastar í. Þegar litið er til viðfangsefna liðinna ára má sjá að við höfum gert menntamálunum góð skil svo kannski er kominn tími á aðrar áherslur þó aldrei séu þau langt undan. Efnahags-, stjórnmál, félags- og menntamál eru jú samofnir þættir sem snerta daglegt líf okkar kvenna í fræðslustörfum. Ábyrgð okkar er mikil við undirbúning komandi kynslóða fyrir lífið. 
 
Hópaskipting og hlutverk hópa. Hópaskipting og breytilegur fundartími hefur reynst vel og leggjum við til að sama fyrirkomulag verði áfram. 
Hlutverk hóps:
  • Ákveða fundarstað.
  • Sjá um orð til umhugsunar.
  • Skrá fundargerð, senda til Magneu Ingólfsdóttur ritara (mingolfsdottir@gmail.com).
  • Senda dagskrá, upplýsingar um kostnað, stað og stund til formanns með viku fyrirvara. Formaður sendir út fundarboð og tekur við tilkynningum um mætingar. 
  • Hvetja konur til að mæta á fundinn og fundi almennt. 
Þær sem eiga feitletruð nöfn bera ábyrgð á að kalla hópinn saman. Konum er frjálst að skipta um hóp ef ástæða er til. 
 
Hópur 1: Guðrún G., Anna Magnea, Guðbjörg, Ingibjörg S. Ólöf Helga, Sif, Sophie.
Hópur 2: Ágústa, Gerður, Bryndís S, Hafdís, Jóhanna, Ragnheiður, Tanya.
Hópur 3: Guðrún Hrefna, Auður Ö., Björg, Eyrún, Kristín Ó, Margrét F.
Hópur 4: Þórunn, Auður T, Brynhildur, Ingibjörg M, Ósa, Sigríður Heiða. 
 
Tillaga að fundardögum og tíma (með fyrirvara):
1. fundur laugardagur 04.10. kl. 10:30–14:00 (stjórn) 
2. fundur mánudagur  03.11. kl. 18:00–20:30 (hópur 1)  
3. fundur þriðjudagur 02.12. kl.  19:00–21:20 (hópur 2– jólafundur)
4. fundur miðvikudagur 04.02. kl. 18:30–21:00 (hópur 3)
5. fundur fimmtudagur  19.03. kl. 18:00–20:30 (hópur 4) 
6. fundur þriðjudagur     28.04. kl. 18:30–21:00 (stjórn)
 
Fram hefur komið að oft væri dagskrá funda svo þétt að lítið tækifæri gæfist til samræðna. Við leggjum því til að alla jafna verði gert ráð fyrir tveimur og hálfum tíma í hvern fund. Við hvetjum til að kostnaði við fundi verði haldið í lágmarki og reynt að fá inni á vinnustöðum, í skólum, á opinberum stöðum og þar sem ekki þarf að greiða fyrir leigu. Athugið að fundardagar og tímar eru með fyrirvara um breytingu. Stjórnin er tilbúin til samráðs og aðstoðar varðandi útvegun fyrirlesara ef þörf er á.
 
Tvær konur sem gengu til samstarfs við Etadeild s.l. vor bíða formlegrar inntöku. Stjórnin hefur ákveðið að inntaka þeirra verði á jólafundinum. 

Síðast uppfært 14. maí 2017