2025-2026
Fyrsti fundur
Fundurinn var haldinn 24. september kl. 17:30-20:30 á Nýja Garði í Háskóla Íslands. 16 félagskonur mættu á fundinn.
1. Stjórn deildarinnar sá um fundinn og kveikti Ólöf Helga Þór á kertum vináttu, trúmennsku og hjálpsemi.
2. Ólöf Helga minntist látinnar félagskonu deildarinnar Bergþóru Gísladóttur.
3. Fram kom að Sigríður Heiða Bragadóttir, varaformaður Eta deildar væri komin í stjórn Framkvæmdaráðs Landssambands Delta Kappa Gamma 2025 – 2027 sem meðstjórnandi.
4. Ólöf Helga Þór og Sigríður Heiða kynntu Framkvæmdaáætlun DKG 2025-2027. Áætlunin byggir á fjórum áhersluþáttum sem settar voru fram í langtímaáætlun DKG á Íslandi til 10 ára, 2021 – 2031. Að þátttaka í samtökunum efli og styðji félagskonur og bjóði upp á möguleika, til að vaxa og þroskast í starfi samtakanna.
Stuðla að eflingu félagskvenna til að kom þekkingu sinni á framfæri á fundum og þingum.
Að efla samtökin þannig að félagskonur upplifi sig sem hluta af heildarsamtökunum sem þær eru stoltar að taka þátt í.
Að samtökin séu þekkt og virt í samfélaginu fyrir starf sitt að fræðslumálum.
Að þróa aðferðir, verkfæri og verkefni sem efla starfsemina.
Nánari útlistun á þessum áhersluþáttum í Framkvæmdaáætluninni er á heimasíðu Framkvæmdaráðs. Ólöf Helga ræddi sérstaklega um nokkur atriði í þessum áhersluþáttum.
Mikilvægi þess að fjölga félögum í deildinni. Virkja félagskonur í að bjóða konum inngöngu í deildina. Í deildinni eru 30 konur og ein með erlendan bakgrunn.
Að deildin héldi sameiginlegan fund með annarri deild 1-2 sinnum á tímabilinu.
5. Sigríður Heiða sagði frá athyglisverðum atriðum sem fram komu í erindi á fundi Framkvæmdaráðs 30.8.2025 sem Hólmfríður Jenný-Árnadóttir flutti Öflugar í sterkum hópi – saman mótum við framtíðina til að vinna að markmiðum samtakanna: Að styrkja konur sem mennta og fræða. Hvaða leiðir getum við farið? Hvernig getum við haft áhrif? Hvernig hægt væri að fjölga konum í samtökunum um 100 konur fram til ársins 2029. Í erindinu fór hún yfir 20 mýtur um samtökin sem voru til umræðu á ráðstefnu DKG í New Orleans síðastliðið sumar. Mjög athyglisvert var að heyra um þessar mýtur og eitt dæmi um þær er: "Það verður að kjósa um nýja deildarkonu".
6. Næst á dagskrá var Skipulagning á vetrarstarfi Eta deildar. Félagskonur skiptu sér í fjóra hópa og mun hver hópur sjá um einn fund um veturinn. Mikil umræða varð um fundarefni í hópunum og varð niðurstaðan eftirfarandi:
Hópur 1 Sjálfrækt. Fyrirlesari Bryndís Jóna.
Hópur 2 Samfélagslegt verkefni: Velja stofnun/félagasamtök sem Eta systur styðja með fjárframlagi. Þetta verður jólafundur og hópurinn ákveður hvaða aðili verður styrktur með andvirði kvöldverðar.
Hópur 3 Samfélagslegt verkefni: Stuðningur við „Jól í skókassa“ í samvinnu við íslenska-úkraínska prjónaklúbbinn í Fíladelfíukirkjunni.
Hópur 4 Sameiginlegur fundur með annarri deild: Farið í heimsókn á fund deildar utan höfuðborgarsvæðisins.
Á meðan félagskonur ræddu um fundarefni gæddu þær sér á gómsætum smáréttum.
7. Síðast á dagskrá voru stuttar frásagnir félagskvenna um skemmtilega atburði sem þær höfðu upplifað síðastliðið sumar og var gerður góður rómur af frásögnunum.
8. Fundi slitið um kl. 20:30.
Annar fundur
Fundurinn var haldinn 11. nóvember 2025 kl. 18:00 í Kringlukránni. Á fundinn mættu 14 félagskonur.
1. Hópur 1 sá um fundinn en í honum eru Magnea, Björk, Bryndís G., Guðrún Hrefna og Ragnheiður Jóna. Ólöf Helga Þór, formaður, setti fundinn og kveikti á kertum vináttu, trúmennsku og hjálpsemi.
2. Teknir voru inn í deildina tveir félagar þær Jónína Ólöf Emilsdóttir og Nanna Kristín Christiansen. Inntökuathöfninni stjórnuðu Ólöf Helga Þór, Sigríður Heiða Bragadóttir og Hafdís Sigurgeirsdóttir. Að lokinni inntökuathöfn tók Bryndís Guðmundsdóttir við stjórn fundarins.
3. Orð til umhugsunar flutti Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir en hún flutti mjög athyglisverða hugleiðingu um um eignarhald eigenda samskiptamiðla á myndefni, texta og greinum sem við almenningur birtum á miðlunum. Hún hvatti okkur til að vera varkárar með efnið sem við deilum og um leið vera góðar fyrirmyndir fyrir börn og ungmenni.
4. Fyrirlesari kvöldsins var Bryndís Jóna Jónsdóttir, aðjúnkt og doktorsnemi.
Fyrirlestur hennar bar heitið “Að rækta huga og hjarta”. Hún fjallaði á líflegan og skemmtilegan hátt um hamingju, góðvild, núvitund og samkennd í eigin garð. Hún lagði áherslu á að við byrjuðum á okkur sjálfum með því að styrkja ræturnar. Sláum af sjálfsgagnrýni, fyrirgefum okkur, verum þakklát, tileinkum okkur umburðarlyndi. Jafnframt sagði hún núvitund vera athyglisþjálfun sem felst í því að tengja við það sem er nú þegar til staðar í þeim aðstæðum sem einstaklingurinn er. Með núvitund þjálfum við okkur í að tengja betur saman huga og líkama og vera meðvituð um upplifanir okkar. Hún hvatti okkur til að taka æfingar í því að taka eftir því sem er að gerast hér og nú. Samkennd í eigin garð taldi hún mikilvæga og benti okkur á fimm leiðir sem gætu gagnast okkur í því sambandi. Auk þess fór hún yfir fimm leiðir til vellíðunar sem eru: ræktaðu samskipti, hreyfðu þig, taktu eftir, haltu áfram að læra, gefðu af þér. Í lokin benti hún á athyglisverðar bækur s.s. nýja bók eftir Louise Evans sem heitir 5 CHAIRS – 5 CHOICES og Núvitund í dagsins önn eftir Bryndísi Jónu Jónsdóttur sjálfa.
5. Í lok fundar stjórnaði Bryndís, fundarstjóri fjöldasöng.
6. Fundi slitið um kl. 20:30.
Þriðji fundur
Fundurinn var haldinn 2. desember 2025 á Löngulínu 27, heimili Önnu Sigríðar Pétursdóttur, kl. 18:00 til 21:00. 23 konur mættu á fundinn. Félagskonur komu sjálfar með aðföng í svokallað Pálínuboð en Anna Sigríður bauð upp á kaffi og gos.
1. Ólöf Helga Þór setti fundinn og kveikti á kertunum þremur. Hún rifjaði síðan örstutt upp 50 ára sögu Delta Kappa Gamma á Íslandi og Eta deildar sem var stofnuð fyrir 28 árum.
2. Orð til umhugsunar. Jónína Ólöf Emilsdóttir sagði okkur hugljúfa jólasögu sem gerðist í 1948 á eyju í Ísafjarðardjúpi en mörg aðföng til jólahalds þurfti að sækja yfir úfinn sjó með tilheyrandi kvíða. Allt fór þó vel að lokum.
3. Starfsmaður sem er sálfræðingur og verkefnastýra sem sér um barnastarfið hjá Kvennaathvarfinu kynnti starfsemi þess bæði hvað varðar börnin og mæður þeirra og svaraði mörgum spurningum félagskvenna. Mikil áhersla er lögð á velferð barnanna í athvarfinu og að sem minnst röskun komi á skólagöngu þeirra og daglegt líf. Eta konur höfðu safnað framlagi til Kvennaathvarfsins og tók starfsmaðurinn við þeirri peningagjöf.
Að lokinni kynningu Kvennaathvarfsins var gengið að gnægtaborði félagskvenna og veitingum gerð góð skil.
4. Anna Elísabet Ólafsdóttir lýðheilsufræðingur kom í heimsókn. Hún sagði frá ferðum sínum til Afríku og ótrúlega merkilegu frumkvöðlastarfi sínu þar og búsetu fjölskyldu sinnar í Tansaníu til margra ára. Hún hafði stofnað fyrirtækið Women Power til að valdefla konur í þorpinu þar sem hún bjó og keypt í nafni fyrirtækisins bújörð þar sem hún kenndi konunum ræktun og uppgræðslu. Hún stofnaði leikskóla og ferðaþjónustuna Tansanice og starfrækti hana þar til Covid faraldurinn skall á og fjölskyldan flutti heim. Hún kynnti tilurð bókar sinnar Ég vildi að ég hefði fæðst strákur sem kom út í ár og las valda kafla úr henni. Bókin er skáldsaga um eina afríska konu en byggð á sögum af hlutskipti margra kvenna sem hún kynntist. Anna Elísabet kom með nokkur eintök af bók sinni sem félagskonur keyptu af henni og svaraði fjölda spurninga.
5. Fjöldasöngur: Ólöf Helga tók fram jólasöngheftin og að söng loknum var gestgjafa okkar og fyrirlesurum færðar rósir.
Fundi var slitið um kl. 9.
Fjórði fundur
Fundurinn var haldinn 28.janúar 2026 í húsi MMS í Víkurhvarfi 3. 16 félagskonur mættu á fundinn og fyrirlesari kvöldsins Birgit Raschhofer.
1. Ólöf Helga formaður setti fundinn og kveikti á kertum vináttu, trúmennsku og hjálpsemi.
2. Birgit Raschhofer kynnti hjálparstarf fyrir úkraínskar flóttakonur, sérstaklega í gegnum svokallaða hannyrða- eða prjónahópa. Þá sagði hún frá söfnun á fötum og efni (t.d. garni og prjónavörum) til kvenna sem hafa flúið stríðið. Einnig er söfnun á fötum og hjálpargögnum til Úkraínu. Síðan sagði hún frá góðgerðarverkefninu Jól í skókassa þar sem fólk gefur jólagjafir til barna sem búa við fátækt eða erfiðar aðstæður í öðrum löndum.
3. Ólöf Helga kynnti bókina - Vinátta, trúmennska, hjálpsemi, 50 ára afmælisrit DKG og sagði frá efni bókarinnar. Fram kom að félagið var stofnað af 11 konum í Texas og að Ísland væri eitt stærsta landsfélag í heiminum. Stefnan er að bæta við 100 konum í DKG á landsvísu á árinu. Hægt er að kaupa ritið fyrir 4500 kr.
4. Næst var rætt um bækur sem félagskonur hafa lesið. Nanna Christiansen ræddi um bókina Þú sem ert á jörðu, rithöfundur Oddný Eir Ævarsdóttir. Töluverð umræða varð um bókina sem er m.a. um samband mannsins við jörðina og náttúruna og voru félagskonur almennt mjög hrifnar af henni. Eyrún Gísladóttir talaði um bókina Piparmeyjar eftir Sigríði Kristínu Þorgrímsdóttur og kom inn á stöðu einhleypra kvenna (Piparjónka) á Íslandi.
5. Eftir líflegar umræður um bækurnar snæddu félagskonur ýmis konar rétti sem þær höfðu komið með, af góðri list.
6. Fundi slitið um kl. 20:30.
Fimmti fundur
Sameiginlegur fundur Epsilon-deildar og Eta-deildar haldinn á Selfossi þriðjudaginn 3. mars 2026. Fyrir fund eða kl 18:00 hittust Epsilon- og Eta-systur í Gallerí Listasel þar sem gafst tækifæri til að kynnast og njóta samveru. Fordrykkur og sætur biti var í boði Epsilondeildar. Síðan var fundurinn haldinn í Tryggvaskála.
19 félagskonur og 1 gestur mættu frá Epsilon deild, 13 félagskonur og 3 gestir mættu frá Eta deild.
1. Margrét Guðmundsdóttir, formaður Epsilon deildar setti fund og kveikti á kertum vináttu, trúmennsku og hjálpsemi.
Sagt frá fréttum frá Landssambandi DKG.
2. Margrét Guðmundsdóttir flutti erindi um Málþing Epsilon deildar Lykill að líðan barna og unglinga sem haldið var í október 2025.
Á málþinginu fjallaði Sigrún Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur og prófessor við Háskólann á Akureyri um andlega líðan barna og unglinga og mikilvægi áfallamiðaðrar nálgunar.
Ellert Geir Ingvason frá Samfélagslögreglunni lýsti því hvernig þau vinna markvisst að því að koma nær fólkinu, sérstaklega börnum og ungmennum til að byggja upp traust og tengsl.
Þá lýstu ungmenni eigin reynslu og sýn á hvað hefur áhrif á andlega líðan þeirra. Hera Fönn Lárusdóttir talaði um að ungmenni í dag þyrftu rými til að vera þau sjálf. Sigurður Ernir Eiðsson fjallaði um mikilvægi jafnvægis milli náms, frístunda og hvíldar. Einnig vildi hann sjá símalausan skóla til að efla tengsl og samveru þar sem stöðug notkun þeirra truflar einbeitingu og dregur úr raunverulegum samskiptum.
Halla Tómasdóttir forseti og Sigríður Munda Jónsdóttir fundarstjóri málþingsins ræddu saman í lok málþingsins um hreyfinguna Riddara kærleikans sem byggir á einfaldri en djúpri hugmynd um að við getum ekki útrýmt hörku með hörku heldur aðeins með kærleika.
Málþingið sýndi með skýrum hætti að andleg líðan barna og ungmenna er ekki aðeins mál einstaklingsins heldur sameiginlegt verkefni samfélagsins alls. Sameiginleg skilaboð málþingsins voru skýr. Til að byggja upp samfélag sem styður við andlega heilsu barna og unglinga þurfum við að standa saman, hlusta, fræða og sýna kærleika í verki. Það er ekki aðeins verkefni skóla og fagfólks heldur allra- foreldra, samfélagsstofnana, stjórnvalda og hvers einstaklings. Ef við sýnum hvort öðru kærleika, hlustum, sjáum hvort annað og metum að verðleikum þá getum við skapað umhverfi þar sem börn og ungmenni geta vaxið upp í öryggi, trausti og von um bjarta framtíð.
3. Nanna Christiansen Eta deild var með Orð til umhugsunar. Hún talaði um líðan nemenda og námsárangur og hvort þetta tvennt gæti farið saman. Samkvæmt nálgun sem kallast á ensku formative assessment og flestir þýða sem leiðsagnarnám (nema aðalnámskráin sem notar orðið leiðsagnarmat) helst líðan nemenda og námsárangur algerlega í hendur. Til að auka skilning og áhuga nemenda þarf kennarinn að valdefla nemendur svo þeir geti tekið ábyrgð á námi sínu. Hann þarf að hafa væntingar til allra nemenda, byggja upp seiglu, kenna þeim að læra af mistökum, efla námsvitund þeirra o.fl. Nemandi sem skilur hvað hann er að læra, veit hvers er vænst af honum og fær viðeigandi stuðning er líklegri til að ná framförum og það stuðlar að vellíðan hans.
4. Haldið var Happdrætti en Epsilondeild stendur fyrir happdrætti á fundum sínum sem er liður í fjáröflun deildarinnar.
5. Fundi var slitið kl. 19:30 og slökkt á kertum vináttu, trúmennsku og hjálpsemi. Eftir mjög ánægjulegan og fróðlegan fund var borðað saman í Tryggvaskála.
Síðast uppfært 21. apr 2026