Stefna og markmið Etadeildar

Stefna  Delta Kappa Gamma hljóðar svona:
Alþjóðasamtökin Delta Kappa Gamma stuðla að auknum fræðilegum og persónulegum þroska kvenna í fræðslustörfum og gæðum í menntun og uppeldisstörfum.
 
Markmið samtakanna eru:
Að efla tengsl kvenna sem vinna að menntamálum/fræðslustörfum víðsvegar í heiminum.
Að heiðra konur sem standa eða hafa staðið framarlega á einhverju sviði menntamála/fræðslumála eða eru að vinna markverð störf í þágu þeirra.
Að efla starfsáhuga og stöðu kvenna í fræðslustörfum.
Að stuðla að æskilegri lagasetningu og styðja hvers konar viðleitni til umbóta í menntamálum almennt og fyrir konur í fræðslustörfum.
Að veita konum, sem skara fram úr í menntamálum, styrki til framhaldsnáms í háskóla og styrkja konur í fræðslustörfum utan samtakanna.
Að efla persónulegan og faglegan þroska félagskvenna og hvetja þær til virkni.
Að fræða félagskonur um það sem efst er á baugi í efnahagsmálum, félagsmálum, stjórnmálum og menntamálum og stuðla með því að vaxandi skilningi og virkri þátttöku þeirra í samfélagi þjóðanna.

Sýn Delta Kappa Gamma kvenna er að vera:
Forystukonur í fræðslustörfum til áhrifa á menntun um allan heim. 

Etadeild starfar í samræmi við stefnu, markmið og sýn alþjóðasamtakanna og hafa deildarkonur mótað með sér eftirfarandi áherslur til næstu ára:
 
Gildi
Frumkvæði, fagmennska og samkennd.
 
Hlutverk
Í Etadeild viljum við fylgjast með þróun í menntamálum, kryfja mál til mergjar og stuðla að menntun og fræðslu. Deildin er vettvangur okkar til að kynnast, deila reynslu og njóta ánægjustunda.
 
Framtíðarsýn
Etadeild er eftirsóknarvert samfélag kvenna sem láta í sér heyra, leiða faglega umræðu og miðla reynslu og nýjungum á breiðum vettvangi mennta og menningar. Etadeild er öflugt stuðningsnet kvenna sem virða og viðurkenna mismunandi sjónarmið, hvetja hver aðra og sýna vináttu í verki.
 
Markmið Etadeildar
Ø     Að hafa forystu í faglegri umræðu
Ø     Að efla innbyrðist tengsl okkar
Ø     Að velja verkefni utan deildar til að vinna að
Ø     Að auka samskipti við konur í öðrum deildum, innan lands sem utan
 


 

Síðast uppfært 10. maí 2021