3. fundur. Jólafundur Eta-deildar verður þriðjudaginn 3. desember

Jólafundur Eta-deildar verður þriðjudaginn 3. desember kl. 20-22 í Skipholti 37, þriðju hæð, Listgreinahúsi Menntavísindasviðs HÍ.  Margar okkar eiga góðar minningar þaðan frá jólafundum í umhverfi Stefaníu. Húsið verður opnað kl. 19.45 og við þurfum að læsa fljótlega upp úr kl. 20. Ef einhver kemur eftir það ætti hún að hringja í 848-2853 (Kristín).   Að þessu sinni verður fyrirkomulag  jólafundar öðruvísi en venja hefur verið. Við borðum okkar kvöldmat heima en fáum  hlýjar og laufléttar veitingar með jólastemmingu í félagsskap Eta-systra.  Nýjar jólabækur verða til umræðu. Til okkar kemur Þórunn Erlu- og Valdimarsdóttir og les úr bók sinni Stúlka með maga.  Kostnaður fyrir hverja okkar er að hámarki 1500 kr. Munið að hafa með ykkur reiðufé.  Við vonum að sem flestar okkar njóti saman þessarar aðventustundar. Með kveðju Undirbúningshópurinn