4. fundur haldinn laugardaginn 8. febrúar kl.10:30 á Grand hótel

Fundur í Eta-deild – fundarboð: Laugardaginn 8. febrúar n.k. verður haldinn morgunverðarfundur í Eta deild. Fundurinn verður haldinn á Grand hóteli og hefst kl. 10:30. Salurinn sem við verðum í heitir Háteigur og er á fjórðu hæð. Þar fáum við góðan morgunverð fyrir kr. 1500.  Gestur fundarins verður Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri, og mun hún fjalla um auðlindir í íslenskri ferðaþjónustu - með áherslu á menntun, menningu og mannauð. Á eftir verður tími fyrir umræður og fyrirspurnir.  Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til Auðar Torfadóttur fyrir fimmtudaginn 6. febrúar.  Hlökkum til að sjá ykkur,