5. fundur haldinn mánudaginn 10. mars kl.18:00 í Hannesarholti
			
					06.03.2014			
	
	
				Kæru Etakonur
 
Mánudaginn 10. mars kl. 18:00 er boðað til fundar í Hannesarholti. 
Dr. Jóhanna T. Einarsdóttir og Ingibjörg Símonardóttir ætla að segja okkur frá niðurstöðum langtímarannsóknar um
tengsl málþroska við upphaf grunnskóla og námsgengi síðar á ævinni. 
Sophie Kofoed-Hansen mun flytja okkur orð til umhugsunar. 
Matráður Hannesarholts sér um viðurgerning, böku og kaffi sem kostar kr. 2.500 á mann.
 
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til undirritaðrar á netfangið gudhre@gmail.com fyrir föstudaginn 7. mars.
 
f. h. undirbúningsnefndar, en hana  skipa Guðrún, Jóhanna, Sophie, Kirsten og Ragnheiður,
 
Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir
	
		
