Fundur miðvikudaginn 21. janúar kl. 18:00

Boðað er til fundar í Etadeild miðvikudaginn 21.janúar kl.18.00 í veitingastaðnum Thorvaldsen bar, Austurstræti 8. Pantaður er á hópinn rétturinn Chicken masala, sem kostar kr. 1690. Þær sem vilja geta sérpantað rétt dagsins (fiskur) á kr. 1990. Kaffið kostar kr. 300. Látið vita fyrirfram ef þið veljið fiskinn, annars er kjúklingurinn sjálfvalinn. Vinsamlegast tilkynnið Guðrúnu Hrefnu (gudhre@simnet.is) um mætingu fyrir mánudaginn 19. janúar. Fundurinn er skipulagður af nefnd sem á að sjá um að finna verkefni utan deildar til að vinna að.