Skemmtikvöld

  Föstudaginn 18. mars ætla DKG systur í Reykjavík og nágrenni að skemmta sér saman. Skemmtikvöldið verður haldið á Nauthól og hefst klukkan 19:00. Veislustjóri verður Kristín Ólafsdóttir.

Þórunn Blöndal verður með orð til umhugsunar og Jóhanna Kristjónsdóttir, beint frá Íran, segir sögur af ástandinu í Austurlöndum. Verð fyrir tvíréttaðan mat og fordrykk er 4.900 kr.

Hægt er að skrá sig á skemmtikvöldið með því að greiða á reikning okkar: 515-26-700241, kt. 491202 2620 og senda tilkynningu á: stefaniavaldis@gmail.com. Lokadagur skráningar er 24. febrúar.

Nánar má lesa um skemmtikvöldið hér.

Það verður söngur, gleði og gaman og við hlökkum til að hitta ykkur í fínum kjólum og á háum hælum.

Með kveðju,
Brynhildur Anna, Guðrún Hrefna, Magnea og Stefanía Valdís í Etadeild