Fundargerðir Etadeildar
Fyrsti fundur 2026–2027
30.september, kl. 18:00 á Finnsson í Kringlunni.
Mættir: 23 félagsmenn af 34 ásamt einum gesti.
- Fundurinn hófst á því að Edda Gíslrún Kjartansdóttir formaður setti fundinn og kveikti á kertum hjálpsemi, vináttu og trúmennsku. Formaður kynnti að Guðbjörg Vilhjálmsdóttir varaformaður ritaði fundargerð í fjarveru ritara, Ragnheiðar Kristínar Sigurðardóttur.
- Í sinni framsögu sagði formaður frá fundi sem hún sótti í framkvæmdarráði Delta Kappa Gamma sem var haldinn 26.september. Þar sagði i formaður landssamtakanna frá störfum sl. ár, Nefndir sögðu einnig frá sínum störfum, s.s. útbreiðslunefnd. Sú nefnd stóð að könnum meðal deildanna í landssamtökunum og sendi út 20 spurninga könnun um starfsemina til formanna deilda.
Þá var fræðsla um skjalavörslu.
Næsta Evrópuþing Delta Kappa Gamma verður í Stavangri í Noregi í júní 2027. Félagskonur eru hvattar til að sækja það. Fram kom að íslenska landssambandið hefur flesta félagsmenn af öllum landssamtökum í Evrópu.
Edda kynnti því næst hópaskiptingu vetrarins og fyrirkomulagi á starfi vetrarnins. Áætlað er að halda fimm fundi og verður næsti fundur í lok nóvember.
Það kom fram í máli Eddu að æskilegt væri að hafa í huga við stjórnarskipti í Eta deild að ekki sé skipt út öllum stjórnarmönnum í einu. Það tryggir samfellu. - Orð til umhugsunar voru í höndum Eddu formanns og kynnti hún ljóð Guðrúnar Hannesdóttur sem birtist í ljóðabókinni Fléttum.
- Aðal erindi fundarins var í höndum Sigríðar Ólafsdóttir dósents á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Sigríður fjallaði um rannsóknaverkefnið Íslenskur námsorðaforði sem 6.000 nemendur víða um land hafa tekið þátt í. Þar af voru 1.500 nemendur í tilraunarhópi haustið 2025 og 1.500 í samanburðarhópi. Í tilrauninni voru orð af Lista yfir íslenskan námsorðaforða (LÍNO-2) kennd með gagnreyndum aðferðum. Niðurstöður sýndu frábæran árangur, jafnt hjá drengjum og stúlkum, og hjá nemendum með íslenskan og erlendan bakgrunn. Góðar umræður urðu um þessa áhugaverðu rannsókn.
Guðbjörg Vilhjálmsdóttir skráði.
Síðast uppfært 05. okt 2026