Allir félagar komnir á póstlistann

Fyrir u.þ.b. viku lauk því verki að setja alla DKG félaga inn á póstlista landsambandsins hér á vefnum. Allar félagskonur ættu því héðan í frá að fá helstu fréttir DKG í tölvupósti. Þær konur sem einnig vilja fá áskrift að fréttum einstakra deilda verða sjálfar að skrá sig inn á þá póstlista. Við vonum að þetta verði til þess að allar félagskonur séu meðvitaðar um það helsta í starfsemi DKG hverju sinni.

Á Evrópuvefnum er útskýrt hvernig maður ber sig að við að skrá sig á póstlista í gegnum vefsíðuna og er ferlið það sama hvort heldur er um að ræða landsambandsvefinn eða Evrópuvefinn.